Á síðustu tveimur árum hafa fjörutíu manns flutt héðan,” sagði Magnús Karel Hannesson, sveitar- stjórnarmaður á Eyrarbakka, í samtali við DB. Í fyrrakvöld héldu hreppsnefndarmenn á Eyrarbakka og Stokkseyri fund með þingmönnum Suðurlandskjördæmis vegna þess að verið er að leggja fram á Alþingi vegaáætlun til fjögurra ára þar sem ekki er minnzt einu orði á Ölfusárbrú.