Veðrið á Bakkanum

https://www.windfinder.com/forecast/eyrarbakki

fimmtudagur, 31. desember 1987

Eyrbekkingar kvaddir 1987

Ágústa G Þórðardóttir í Einkofa 96 ára.
Eiríkur J Eiríksson þjóðgarðsvörður.
Guðfinna Jónsdóttir á Selfossi. 
Ingvar Júlíus Halldórsson í Hliði 90 ára.
Ingvi Rafn Einarsson í Götuhúsum.
Sigríður Jóna Jónasdóttir í Grindavík. 
Sigurður Guðjónsson (Siggi Guðjóns) skipstjóri á Litlu-Háeyri.

sunnudagur, 6. desember 1987

þriðjudagur, 10. nóvember 1987

Umfjöllun

 DVALARHEIMILI fyrir aldraða var vigt og tekið í notkun á Eyrarbakka sunnudaginn 1. nóvember. Heimilið heitir Sólvellir og er í gamla læknisbústaðnum sem var gerður upp fyrir forgöngu Samtaka áhugamanna um dvalarheimilið á Eyrarbakka.

Morgunblaðið - 10. nóvember 1987

föstudagur, 12. júní 1987

Sjóminjasafnið opnaði á Sjómannadaginn

 Mikil og almenn þátttaka var á Sjómannadeiginum í ýmiskonar busluleikjum sem fram fóru við höfnina og voru áhorfendur óvenju margir, enda hið besta veður. Merkasti þáttur hátíðarhaldanna var opnun sjóminjasafnsins á Eyrarbakka. 

Morgunblaðið - 12. júní 1986

þriðjudagur, 26. maí 1987

Suðurvör kaupir frystihúsið

 Búið að ganga frá kaupum Suðurvarar á hraðfrystihúsinu.  Unnið er við grálúðuverkun hjá Suðurvör á Eyrarbakka. Fyrirtækið hefur verið með húsið á leigu undanfarin tvö ár.

Nánar í Mogganum í dag 

fimmtudagur, 26. febrúar 1987

Loðnufrysting hafin

 Á EYRARBAKKA var nú í fyrsta skipti í langan tíma unnið við loðnufrystingu. Byrjað var að frysta sunnudaginn 14. febrúar. Loðnan var fryst í hraðfrystihúsi Suðurvarar og unnið þar á þrískiptum vöktum allan sólarhringinn. Auk loðnufrystingarinnar er unnið við verkun á ufsa í salt.

Morgunblaðið - 26. febrúar 1987