Veðrið á Bakkanum

https://www.windfinder.com/forecast/eyrarbakki

laugardagur, 31. desember 1977

Eyrbekkingar kvaddir 1977

Árni Helgason formaður á Akri.
Elínborg Kristjánsdóttir í Reykjavík. 
Guðmunda Jóhannsdóttir á Akri. 
Guðmundur Andrésson á Skúmstöðum.
Ingiríður Guðmundsdóttir á Ásabergi.
Jakobína G Jakopsdóttir í Einarshöfn.
Jóhann B Loftsson formaður á Háeyri. 
Sigurður Kristjánsson  (Siggi Kristjáns) hreppstjóri á Búðarstíg.
Þórunn Gunnarsdóttir í Reykjavík. 

fimmtudagur, 10. nóvember 1977

Stjórnmál

 Eyrarbakki í fjársvelti?

Fjölmennur fundur Alþýðubandalagsins um atvinnumál - Alþýðubandalagið gekkst fyrir fundi á Eyrarbakka s.l. laugardag um atvinnumál. Fundurinn var óvenju fjölsóttur og fundargestir milli 60 og 70.

Þjóðviljinn - 10. nóvember 1977

þriðjudagur, 6. september 1977

Erlingur ætlar fram

 Alþýðublaðið kynnir þáttakendur í prófkjöri fyrir kratanna. Erlingur Ævarr frá Vatnagarði er meðal þeirra sem ætla fram.

Alþýðublaðið - 06. september 1977

þriðjudagur, 8. mars 1977

Togarinn kominn heim

 Bjarni Herjólfsson ÁR 100 kom í fyrsta skipti til Þorlákshafnar í dag, en Þorlákshöfn verður heimahöfn togarans. Skipið var smíðað í Póllandi og er í eigu Árborgar HF en að því standa Eyrarbakki, Stokkseyri og Selfoss. Vigfús Jónsson er stjórnarformaður.

Skipstjóri er Axel Schut ásamt 16 manna áhöfn. 

Kaupverð er á milli 500 og 600 miljónir.