Veðrið á Bakkanum

https://www.windfinder.com/forecast/eyrarbakki

mánudagur, 27. apríl 2026

Jonni og Böddi á Sóltúni

 Jón Ingi [Jonni] Sigurjónsson (1936-2020) Valdimarssonar og Lilju Böðvarsdóttir í Norðurkoti. Kona hans var Margrét [Magga] Ólafsdóttir frá Götuhúsum húsasmiðs, Ólafssonar vegaverkstjóra á Þorvaldseyri Bjarnasonar í Simbakoti. Jonni og Magga bjuggu á efri hæðinni í Sóltúni, en aldrei bjó neinn á efstu hæð þessa mikla húss sem byggt var um og eftir 1960. Jonni starfaði við ýmis verkamannastörf, síðast hjá Alpan ehf. Magga vann við afgreiðslu í kaupfélaginu á meðan það var og hét. Hún dó fyrir aldur fram aðeins 52 ára. 

Böðvar [Böddi] Sigurjónsson (1938-2018) bróðir Jóns bjó á jarðhæðinni og hans frú var Hanna Guðmundsdóttir frá Stekkum. Böðvar stundaði umfangsmikla kartöflurækt seinni árin en ýmis verkamannastörf fyrrum. 

Skúmstaðahverfi-Sóltún

þriðjudagur, 21. apríl 2026

Lilja í Norðurkoti

 Lilja Böðvarsdóttir (1914 - 2006) í Norðurkoti var verkakona fædd á Skálmholtshrauni í Villingaholti. Móðir hennar hét Jónína Guðmundsdóttir. Lilja var ein af 9 systkynunum sem flest bjuggu á Bakkanum og afkomendur mörg um lengri eða skemmri tíma. Eginnmaður hennar var Sigurjón (1919-1952) Valdimarssonar er síðast stundaði útgerð á Akranesi. Móðir Sigurjóns var Guðný Jónsdóttir bónda og útgerðarmanns í Norðurloti.  Lilja og Sigurjón áttu fjögur börn, en Lilja varð ekkja snemma á lífsleiðinni þegar maður hennar lést vegna veikinda.

Norðurkot er gömul hjáleiga frá Skúmsstöðum en er núna sumarbústaður.

[Norðurkot Skúmstaðahverfi]

mánudagur, 20. apríl 2026

Gvendur Eiríks í Merkigarði

 Guðmundur smiður Eiríksson (1899-1984) bjó í Merkigarði sem ber nafn sitt eftir landamerkjum Háeyrar og Skúmstaða og Stefán Ögmundsson lét byggj árið 1878. Eiríkur var bóndi í Þórðarkoti Árnasonar bónda þar. Móðir Guðmundar var Helga Guðmundsdóttir. Kona Guðmundar var Sigurlína Jónsdóttir. Þau áttu 3 börn, Bjarna, Eirík og Ósk.


Guðmundur rak lítið trésmíðaverkstæði út við sjógarð, við svokölluð "byrgi".

sunnudagur, 19. apríl 2026

Siggi tani á Sólbakka

 Sigurður skipstjóri Guðmundsson (1924-1981) bílasala á Eyrarbakka og síðar Reykjavík, Guðmundsonar oddvita á Eyrarbakka Jónssonar bónda á Hrauni í Ölfusi er drukknaði í Ölfusárósi ásamt sr Guðmundi presti í Arnarbæli 1873. Móðir Sigurðar var Guðlaug Brynjólfsdóttir skósmiðs í Garðhúsum, siðar Merkisteini. Kona Sigurðar var Vilborg Sæmundsdóttir talsimavörður (1928-1999) trésmiðs í Einarshúsi Eyrarbakka.  Þau áttu tvo syni, Hafstein er lést 19 ára gamall í bílslysi árið 1980 og Guðmund Jónatan er lést vegna alvarlegra veikinda 15 ára gamall árið 1981. Þau fluttu til Reykjavíkur 1967 en dvöldu oftast í Einarshúsi á sumrin á meðan Sigurður og synirnir lifðu.


[Sólbakki ] Háeyrarhverfi