ÁRSÆLL Ársælsson kaupmaður á Selfossi tók við söluskála Olís á Eyrarbakka í byrjun desember og rak hann undir nafninu Sælabúð fram að síðustu mánaðamótum. Nú hafa nýir aðilar, Aðalheiður Sigfúsdóttir og Ási Markús Þórðarson, tekið við rekstri skálans og reka hann undir nafninu Ás-Inn.
Veðrið á Bakkanum
miðvikudagur, 22. febrúar 1989
sunnudagur, 15. janúar 1989
Mikið að gera í Alpan
MIKIL ásókn heftir verið í vinnu hjá fyrirtækinu Alpan á Eyrarbakka síðan það auglýsti eftir starfsfólki fyrir nokkru.
Eins og kunnugt er framleiðir Alpan álpönnur, aðallega til útflutnings, og vegna anna var tekin sú ákvörðun að fjölga starfsfólki.
Morgunblaðið - 15. janúar 1989
laugardagur, 31. desember 1988
Eyrbekkingar kvaddir 1988
fimmtudagur, 15. desember 1988
Björgunarsveitin á afmæli
Slysavarnadeildin Björg á Eyrarbakka verður 60 ára þann 21. desember. Jón_E. Bergsveinsson, erindreki SVFÍ boðaði til stofnfundarins. Fyrstu stjórn deildarinnar skipuðu Þorleifur Guðmundsson, fyrrverandi alþingismaður, formaður og Jón Helgason skipstjóri, ritari og Jón Stefánsson verkstjóri, gjaldkeri.
Nánar í Mogganum í dag
þriðjudagur, 27. september 1988
Verkamannabústaðir við Álfstétt
Stjórn verkamannabústaða á Eyrarbakka óskar eftir tilboðum í byggingu tveggja einbýlishúsa og eins parhúss úr steinsteypu.
Dagur - 27. september 1988
fimmtudagur, 31. desember 1987
Eyrbekkingar kvaddir 1987
sunnudagur, 6. desember 1987
Umfjöllun í DV
Vöruflutningar eru leikur einn hjá þvi sem var,“ segir Guðlaugur Pálsson kaupmaður....