Veðrið á Bakkanum

https://www.windfinder.com/forecast/eyrarbakki

föstudagur, 27. janúar 2006

Vilja leggja göngu og hjólastíga

 Umhverfisnefnd Árborgar bendir á nauðsyn þess að hefjast handa nú þegar við gerð hjólreiða- og göngustíga á milli Eyrarbakka og Stokkseyri. Einnig að uppbyggingu grænna svæða við ströndina verði haldið áfram. Mikill fjöldi ferðamanna heimsækir svæðið, auk þess að örugga hjóla- og gönguleið vantar milli staðanna sem er mjög brýnt m.a. vegna sameiningar grunnskólanna á stöðunum. Bæta þarf einnig útivistarmöguleika íbúa við ströndina. 

http://www.arborg.is/ 

Brim.123.is 



föstudagur, 13. janúar 2006

Íbúar í Árborg 7000

 Íbúar Árborgar eru orðnir 7000 talsins. Snemma í gærmorgun fæddist drengur á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi sem fyllti sjöunda þúsundið. Hann mun vera Eyrbekkingur samkvæmt frétt á www.stokkseyri.is Hsu nýburar

Brim.123.is. 

mánudagur, 9. janúar 2006

Básendaflóðið

 Í dag eru liðin 207 ár frá Básendaflóðinu sem var mesta flóð Íslandssögunar,en þá gekk einver dýpsta lægð allra tíma yfir Ísland. Kaupstaðurinn Básendar varð rústir einar og byggðist aldrei aftur. Kirkjur fuku á Hvalsnesi og Nesi við Seltjörn. Bátar og skip skemmdust víða á svæðinu frá Eyrarbakka og vestur á Snæfellsnes.

Básendaflóðið 9.janúar 1799 olli töluverðum skemmdum á eignum Eyrbekkinga. Þá lét Lambertsen verslunarstjóri Sunckenberg verslunarinnar sem þá hét, hlaða mikinn garð fyrir framan búðirnar og Húsið sem enn stendur og störfuðu margir Bakkamenn við framkvæmd þess.

Í dag eru einnig liðin 16 ár frá Stormflóðinu mikla sem gekk yfir Eyrarbakka 9.janúar 1990 og olli miklu tjóni á Eyrarbakka og 

Brim.123.is 

laugardagur, 7. janúar 2006

Framhaldsfundur Bæjarstjórnar

Framhaldsfundur Bæjarstjórnar Árborgar var haldinn í dag. Til afgreiðslu var tillaga að aðalskipulagi sveitarfélagsins til næstu 20 ára ásamt breytingartillögum minni hlutans.

Hópur Eyrbekkinga mætti á áhorfendapalla eins vænta mátti, en sem kunnugt er gerðu allmargir Eyrbekkingar athugasemdir við framkomna tillögu þar sem hún tók ekki til mögulegs byggingarlands norðan þorpsins. 

Heimild: Brim.123.is 


 


 


 

laugardagur, 31. desember 2005

Eyrbekkingar kvaddir 2005

Aðalheiður K Jónsdóttir á Háeyrarvöllum 91árs.
Friðjón Hauksson á Háeyrarvöllum 19 ára voflega. 
Halldór Jónsson fangavörður á Selfossi. 
Karl Þórðarson á Háeyrarvöllum.
Ólafur Vilbergsson sjómaður á Helgafelli. 
Valgerður Sveinsdóttir á Háeyrarvöllum.

mánudagur, 19. desember 2005

Alpan hættir á Eyrarbakka

 

Alpan hf. hefur ákveðið að flytja álpönnuverksmiðju sína frá Eyrarbakka til bæjarins Targoviste í Rúmeníu. Framleiðslu hér verður hætt í mars og hún hafin aftur í maí í húsnæði sem keypt hefur verið í Rúmeníu.

 

 Alpan hf. var keypt frá Danmörku árið 1984 og hóf starfsemi sína sama ár á Eyrarbakka. Verksmiðjan í Danmörku hafði þá framleitt undir vörumerkinu LOOK í 35 ár og fyrirtækið því orðið 50 ára gamalt.

Alpan hf. hefur starfað á Eyrarbakka síðastliðin 20 ár og framleitt hágæða eldunaráhöld sem næstum öll fara á erlendan markað og hafa verið seld í yfir tuttugu löndum víðsvegar um heim. Þegar flest var hjá fyrirtækinu voru starfsmenn um 50.

 

Nú vinna 25 manns hjá Alpan og því ljóst að þetta er umtalsvert áfall fyrir Eyrarbakka.

Við hljótum að harma þessa ákvörðun fyrirtækisinns og það fordæmi sem í henni felst. Þó er líklegt að flestir sem starfa hjá fyrirtækinu fái vinnu annarstaðar enda atvinnuástand á svæðinu tiltölulega gott.

 

Alpan var upphaflega sett á fót til að styrkja atvinnuvegi á Suðurlandi og kom sér vel fyrir Eyrbekkinga sem voru á þessum tíma að missa útgerðina burt úr plássinu.


Brim.123.is 


miðvikudagur, 14. september 2005

Skjaldbakur rifinn

 18.8.2005

Bæjarstarfsmenn eru byrjaðir að rífa Skjaldbakinn sem m.a. var lengi notaður sem veiðarfærageimsla og verður örugglega "sjónarsviptir" af þeirri skemmu þegar verkamennirnir hafa lokið við sína niðurrifsstarfsemi. Væntanlega mun efniviðurinn síðan verða fluttur á Selfoss.