Bólstaður, hús Ragnars Runólfssonar og Lilju konu hans var rifið niður í dag, en það er eitt af sex húsum sem eyðilögðust í Suðurlandsskjálfta árið 2008
Veðrið á Bakkanum
föstudagur, 9. október 2009
laugardagur, 15. ágúst 2009
Aldamótahátið
ALDAMÓTAHÁTÍÐ verður haldin á Eyrarbakka 15. og 16 ágúst. Markaðstorg verður á Gónhóli og skrúðganga verður farin frá barnaskólanum. Kjötsúpuhátíð verður við Húsið, Byggðasafn Árnesinga.
föstudagur, 15. maí 2009
Skemmtigarður í frystihúsi
Árið 2006 keypti Árni Valdimarsson frá Kílhrauni á Skeiðum frystuhúsið á Eyrarbakka. Nú er hugmyndin að búa til lifandi skemmtigarð inni í frystihúsinu eins og Anna Sigríður Árnadóttir, dóttir Árna, sagði í spjalli við Morgunblaðið í dag.
miðvikudagur, 31. desember 2008
Eyrbekkingar kvaddir 2008
miðvikudagur, 22. október 2008
Blysför að Kríunni
Nemendur Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri fóru í gær í blysför að listaverkinu Kríunni eftir Sigurjón Ólafsson myndhöggvara, en í gær voru liðin 100 ár frá fæðingu listamannsins. Sigurjón Ólafsson fæddist í Einarshöfn á Eyrarbakka 21. október 1908. Hann ólst upp á Eyrarbakka og gekk þar í barnaskóla.
sunnudagur, 27. júlí 2008
Nóg að sjá og skoða við ströndina
Kajakaferðir eru farnar frá Stokkseyri og þar má einnig heimsækja Tónminjasetrið, Draugasafnið, Álfa og Tröllasafnið og Veiðisafnið svo eitthvað sé nefnt. Á Eyrarbakka má heimsækja Byggðasafn Árnesinga í Húsinu á Eyrarbakka, einu elsta og merkasta húsi landsins.
sunnudagur, 20. júlí 2008
Góður andi í Gónhól
Viðtal við Árna Valdimarsson og Ninu Björg Knútsdóttir sem nýlega opnuðu menningarmiðstöð í Frystihúsinu.
Morgunblaðið - 20. júlí 2008
https://timarit.is/page/4194868?iabr=on#page/n18/search/Eyrarbakka%20/inflections/true