Veðrið á Bakkanum

https://www.windfinder.com/forecast/eyrarbakki

þriðjudagur, 5. desember 2017

Laugabúð opin

 Hundrað ár voru í gær liðin frá því að Guðlaugur Pálsson hóf verslunarrekstur á Eyrarbakka. Magnús Karel Hannesson gerði búðina í upprunalegu mynd og rekur þar safnbúð.

Mogginn í dag.

föstudagur, 28. júlí 2017

Skemmdarverk á leikskólanum

 Skemmdarverk var unnið á leikskólanum Jötunheimum og fjöldinn allur af flísum brotnar um síðustu helgi. 


Málið hefur verið kært til lögreglu. 

sunnudagur, 4. júní 2017

Sjómannadagurinn

 Sjómannadagurinn á Eyrarbakka fastbundinn í hefðina,  Messan, kaffisalan og svo skemmtisiglingin á vegum björgunarsveitarinnar.

mánudagur, 27. febrúar 2017

Þakið fór að leka

 Vatnið drippaði niður á gólf og voru settar fötur undir þegar þakið yfir einu kennslutími Sunnulækjarskóla tók upp á því að leka. Regnvatn hafði komist inn í tæknirými á þakinu og var vinnuflokkur sendur til að gera viðeigandi ráðstafanir. 


laugardagur, 31. desember 2016

Eyrbekkingar kvaddir 2016

Gunnar I Olsen rekstrarstjóri í Smáratúni.
Halldóra O Bjarnadóttir á Sólvöllum 97 ára .
Ingibjörg Jóhannsdóttir á Sólvöllum 91 árs.
Jóhann Gíslason vélvirki í Kirkjuhúsi.
Þórir A Guðmundsson stýrimaður á Akri.
Þórunn Vilbergsdóttir í Hjalladæl.

mánudagur, 12. desember 2016

Stúka Selfoss lekur

 Miklir lekar hafa orðið í búningsklefum stúkunar á Selfossvelli og framundan umfangsmiklar viðgerðir og endurbætur.


fimmtudagur, 24. nóvember 2016

Skólalóðin fylltist af vatni

 Eftir mikið úrhelli myndaðist tjörn á lóðinni við Sunnulækjarskóla þegar niðurföll höfðu ekki undan. Unnið var að því að laga ástandið, en litlu munaði að flæddi inn í hús.