Veðrið á Bakkanum

https://www.windfinder.com/forecast/eyrarbakki

mánudagur, 22. desember 2025

Sigmundur Guðjóns - "Simmi"

Sigurmundur Guðjónsson (1903-1985) þekktur sem "Simmi" bjó í Einarshöfn. Faðir hans Jónsson bóndi á Skúmsstöðum ættaður frá Lyngum í Meðallandi. Móðir hans var Guðrún Vigfúsdóttir frá Efra-Seli á Stokkseyri. Kona Sigurmundar var Ágústa Magnúsdóttir (1905-1996) frá Miðhúsum Gnúpverjahreppi. Börn þeirra Guðrún og Jón Ingi listmálari á Selfossi. Sigurmundur átti nokkrar kindur og hænur sem hann annaðist, en auk þess starfaði hann í Plastiðjunni. Hann átti Ferguson traktor sem hann fór allra sinna ferða á.
Sigmundur annaðist vörslu á landgræðslusvæðinu vestan við þorpið og viðhald á girðingum fyrir Landgræðslu Ríkisins mestan hluta starfsævinar. 

Einarshafnarhverfi 

Guðjón Páls - "Gauji Páls"

Guðjón Pálsson í Höfn (1924-2014) þekktur sem "Gauji Páls" var frá Leifseyri á Eyrarbakka. Faðir Guðjóns var vélstjóri en hann drukknaði á Einarshafnasundi 1927 með mótorbátnum m/b Sæfara, er hét áður Framtíðin. Móðir Guðjóns var Elín Þórðardóttir frá Syðri-Hömrum. Guðjón var giftur Gyðríði Sigurðardóttir frá Steinsbæ, fyrrverandi leikskólastjóra í Brimveri. Guðjón var lengi línuskytta björgunarsveitarinnar og öflugur meðlimur slysavarnarfélagsins. Guðjón og Gyðríður áttu þrjú börn. 

Einarshafnarhverfi 

sunnudagur, 21. desember 2025

Sigurður Jóns - Siggi í Steinsbæ

Sigurður Jónsson (1888 -1967) þekktur sem Siggi í Steinsbæ á Eyrarbakka sonur Jóns á Brekkum í Holtum og Gyðríðar Steinsdóttir skipasmiðs í Einarshöfn og svo sem Steinsbær er nefndur eftir. Kona Sigurðar var Regína Jakopsdóttir frá Einarshöfn. Sigurður var smiður góður og á sínum efri árum smíðaði hann einkum vöggur, barnarúm og leikföng úr tré. Sigurður og Regína áttu sjö börn.

miðvikudagur, 26. nóvember 2025

sunnudagur, 9. nóvember 2025