Veðrið á Bakkanum

https://www.windfinder.com/forecast/eyrarbakki

mánudagur, 29. desember 2025

Jón V Ólafsson - "Jón Valgeir "

Jón Valgeir Ólafsson (1915-2003) verkstjóri bjó á Búðarstíg. Afi hans Jón Árnason var útvegsbóndi í Þorlákshöfn. Móðir hans var Jónína Guðrún Sigurðardóttir formanns á Kalastöðum. (1872-1945) Kona hans var Guðrún Bjarnfinnsdóttir (1923-1989) "Stella " dóttir Rannveigar Jóns hafnsögumanns í Melshúsum. Þau eignuðust sjö börn. Stella var mjög virk í kvennfélaginu og kirkjukórnum. Jón Valgeir ásamt fleirum gerðu út m/b Pipp ÁR um nokkurt skeið en lengst af var hann verkstjóri í Plastiðjunni en flestir starfsmenn þar voru úr Skúmstaðar og Einarshafnarhverfi. Í hjáverkum stundaði Jón Valgeir grásleppuveiðar á litlum árabát sem hann réri austur í Hrauns-lónin. Síðar þegar starfsemi Plastiðjunar dróst saman og framleiðslueiningar seldar úr þorpinu þá setti hann upp dálítið kjúklingabú í byggingu á baklóð sem áður var þvottahús og smiðja. Fyrsta og eina kjúklingabúið á Bakkanum. Jón Valgeir hafð sérstakt yndi af stangveiðum og fór reglulega í laxveiði ásamt valinkunnum hópi Bakkamanna. Sonur þeirra Haraldur fórst með Hafrún ÁR-28 úti fyrir Eldey 1976

Skúmstaðahverfi 

sunnudagur, 28. desember 2025

Ragnhildur Ólafsdóttir - "Ragna í Hreggvið "

Ragnhildur Ólafsdóttir (1893-1984) frá Hreiðurborg bjó í Hreggvið í Skúmstaðahverfi. Móðir hennar hét einnig Ragnhildur og var Ísleifsdóttir úr Selvogi. Ragnhildur var ekkja Gísla Pálssonar í Nesi Selvogi. Sagt er að Ragnhildur eldri hafi látið byggja Hreggvið 1925. Börn Ragnhildar yngri voru Ólafur Gíslason "Óli Gísla" í Sandvík vegaverkstjóri og Gísli Ragnar Gíslason á Austurvelli, Háeyrarvöllum. Þekktur sem "Gísli í Kaupfélaginu " síðar fangavörður og lögga.

Skúmstaðahverfi 

laugardagur, 27. desember 2025

Guðmundur Andrésson - "Gvendur Andrésar "

Guðmundur Andrésson (1902-1977) þekktur sem Gvendur Andrésar bjó á Skúmsstöðum (Hallanda). Bústýra hans var Guðrún Alda Helgadóttir (1930-2013) frá Borgarholti á Stokkseyri og Steinvarar Jónsdóttur. Sonur Öldu er "Helgi Ingvars" fyrrum sjómaður og skipstjóri. Alda starfaði allann sinn starfsaldur við fiskvinnslu og var með hressustu kerlingum á Bakkanum. Hún var síðast búsett á Sólvöllum

Skúmstaðahverfi 

Þuríður Helgadóttir - "Þura á Kaldbak "

Þuríður Helgadóttir (1904-1995) þekkt sem "Þura á Kaldbak" var ekkja Guðjóns (1897-1964) Guðmundssonar frá Vorhúsum. Foreldrar Þuríðar voru Kristín Jónsdóttir frá Súluholtshjáleigu og Helgi Jónsson bónda þar. Þuríður og Guðjón áttu fjögur börn. Þuríður vann við fiskvinnslu eins og allmargir Bakkakonur í þann tíma og söng í kirkjukórnum. Nokkrum árum eftir fráfall Guðjóns flutti Þura til Ingu dóttur sinnar á Smáratúni og dvaldi þar til æviloka. 

Skúmstaðahverfi 

föstudagur, 26. desember 2025

Jón Þórarinsson "Jón Kaldi"

þorbergur Jón Þórarinsson (1915-1998) á Skúmsstöðum þekktur sem "Jón kaldi". Sonur þórarinns í Stígprýði og Oddnýju Magnúsdóttir formanns í Nýjabæ. Guðrún Guðjónsdóttir (1913-2013) "Gunna" var bústýra hjá Jóni, en bjó áður með Kristni Vilmundarsyni í Vestmannaeyjum og átti barn með honum. ( sjá: Þórir Vilmundur Kristinsson). Þau Jón og Gunna giftust síðar. Jón starfaði lengi í Plastiðjunni. Gunna bjó síðustu árin á Sólvöllum og náði 100 ára aldri.

Skúmstaðahverfi 

fimmtudagur, 25. desember 2025

Ágústa Jóhannesardóttir - "Gústa í Brennu "

Halldóra Ágústa Jóhannesdóttir (1898-1982) gullsmiðs bjó í Brennu, þekkt sem Ágústa í Brennu, var smá í vexti en afbragðsgóð orgelleikari og svo kenndi hún 6 ára börnum að lesa, eins og nokkrar konur stunduðu á Bakkanum í eina tíð. Móðir hennar var Þórdís Símonardóttir ljósmóðir í Stíghúsi. Ágústa bjó með Bergsteini smið Sveinssyni og einn frumkvöðla í kartöflurækt á Bakkanum. 

Skúmstaðahverfi 

Vilhjálmur Einarsson - "Villi í Tröð "

Vilhjálmur Kristinm Einarsson (1894 -1989) bóndi í Traðarhúsi, þekktur sem Villi í Tröð. Móðir hans Aldís Guðmundsdóttir smiðs frá Eimu. Kona hans Sigríður Sigurðardóttir frá Vatnagarði. Börn þeirra Eydís (Eyja) og Kristín (Stína). Villi hafði lengst af kýr, kindur og hænsni auk ýmissa verkamannastarfa í þorpinu svo sem við sjógarðshleðslu og fiskvinnslu. Föðurafi Villa var Jón Guðmundsson bóndi á Hreiðri í Holtum

Skúmstaðahverfi