Guðjón Öfjörð Sigfússon (1929--1994) þekktur sem "Gauji Ö" frá Lækjarmóti bjó í Stíghúsi á Búðarstíg og rak vélaverkstæði þar sunnan til á lóðinni við sjógarðinn. Sigfús faðir hans Öfjörð á Lækarmóti var ítustjóri og oft fenginn í jarðvinnuverkefni á ströndinni. Móðir Guðjóns var Lára Guðmundsdóttir frá Sólheimum í Gnúpverjahreppi. Guðjón var giftur Fanney Guðrúnu Magnúsdóttur úr Reykjavík, en afi hennar var Kjartan Guðmundsson á Stokkseyri. Guðjón og Fanney áttu 4 börn.
Veðrið á Bakkanum
https://www.windfinder.com/forecast/eyrarbakki
miðvikudagur, 31. desember 2025
Þau féllu frá á árinu 2025
Ásta Ólafsdóttir (1936-2025) hún ólst upp hjá systkynunum Jóni Kristinn og Ástu Gunnarsbarna í Gunnarshúsi.
Bragi Andrésson (1946-2025) Hjalladæl. Bragi var ættaður frá Sperðli í Landeyjum og þekktur fyrir hrossarækt. Eftirlifandi kona hans er María Níelsen.
Emil Ragnarsson (1944-2025) Háeyrarvöllum. Emil var þekktur sauðfjárræktandi á Eyrarbakka. Eftirfarandi kona hans er Ingibjörg Guðmundsdóttir.
Sigríður Sæmundsdóttir Túngötu, þekkt sem 'Sigga Sæm'. Eftirlifandi eiginmaður hennar er Trausti Sigurðsson vörubifreiðastjóri.
þriðjudagur, 30. desember 2025
Sverrir Bjarnfinnsson - "Sverrir skipstjóri "
Sverrir skipstjóri Bjarnfinnsson (1920-1992) steinsmiðs á Búðarstíg Þórarinssonar bónda í Nýjabæ. Móðir hans var Rannveig Jónsdóttir hafnsögumanns í Melshúsum. (Sjá: Guðrún Bjarnfinnsdóttir) Sigurðssonar formanns í Neistakoti, Teitsson hafnsögumanns á Skúmsstöðum. Sverrir var giftur Guðlaugu Böðvarsdóttir (1922-2012) -þekkt sem "Lilla" - frá Einarshöfn Friðrikssonar bónda á Stönd í Landeyjum. Þau áttu tíu börn. Sverrir var skipstjóri á Þorláki Helga ÁR og átti farsælan sjómannsferil. Árið 1966 brann íbúðarhús þeirra á Búðarsignum til kaldra kola. Sverrir byggði á sama stað eitt fyrsta nútímalega einbýlishúsið á Eyrarbakka og að margra mati hið glæsilegasta. Eftir að skipstjóraferlinum lauk starfaði hann við netagerð í Óðinshúsi.
mánudagur, 29. desember 2025
Sigurður kaupmaður -"Siggi Kristjáns "
Sigurður Kristjánsson (1896-1977) þekktur sem "Siggi Kristjáns" bjó í einu af reisulegri húsunum á Búðarsignum. Kristján faðir hans Jóhannesson var sparisjóðsstjóri á Eyrarbakka í eina tíð og kaupfélagsstjóri. Elín Sigurðardóttir hét kona hans og móðir Sigurðar. Fyrri kona Sigurðar var Sigurbjörg Vilhjálmsdóttir ferjumanns og járnsmiðs á Óseyrarnesi. Þau áttu eitt barn. Síðari kona Sigurðar var Aðalheiður Jónsdóttir frá Litlu Háeyri. Þau áttu tvö börn. Siggi Kristjáns var kaupmaður á Eyrarbakka, fyrrum hreppstjóri og áhugaljósmyndari. Hann var einn fárra sem eignaðist bifreið í upphafi bílaaldar. Hann gaf sig nokkuð að hreppsnefndarmálum á Bakkanum um miðja 20. öld og var formaður skólanefndar Barnasólanns á Eyrarbakka.
Jón V Ólafsson - "Jón Valgeir "
Jón Valgeir Ólafsson (1915-2003) verkstjóri bjó á Búðarstíg. Afi hans Jón Árnason var útvegsbóndi í Þorlákshöfn. Móðir hans var Jónína Guðrún Sigurðardóttir formanns á Kalastöðum. (1872-1945) Kona hans var Guðrún Bjarnfinnsdóttir (1923-1989) "Stella " dóttir Rannveigar Jóns hafnsögumanns í Melshúsum. Þau eignuðust sjö börn. Stella var mjög virk í kvennfélaginu og kirkjukórnum. Jón Valgeir ásamt fleirum gerðu út m/b Pipp ÁR um nokkurt skeið en lengst af var hann verkstjóri í Plastiðjunni en flestir starfsmenn þar voru úr Skúmstaðar og Einarshafnarhverfi. Í hjáverkum stundaði Jón Valgeir grásleppuveiðar á litlum árabát sem hann réri austur í Hrauns-lónin. Síðar þegar starfsemi Plastiðjunar dróst saman og framleiðslueiningar seldar úr þorpinu þá setti hann upp dálítið kjúklingabú í byggingu á baklóð sem áður var þvottahús og smiðja. Fyrsta og eina kjúklingabúið á Bakkanum. Jón Valgeir hafð sérstakt yndi af stangveiðum og fór reglulega í laxveiði ásamt valinkunnum hópi Bakkamanna. Sonur þeirra Haraldur fórst með Hafrún ÁR-28 úti fyrir Eldey 1976
sunnudagur, 28. desember 2025
Ragnhildur Ólafsdóttir - "Ragna í Hreggvið "
Ragnhildur Ólafsdóttir (1893-1984) frá Hreiðurborg bjó í Hreggvið í Skúmstaðahverfi. Móðir hennar hét einnig Ragnhildur og var Ísleifsdóttir úr Selvogi. Ragnhildur var ekkja Gísla Pálssonar í Nesi Selvogi. Sagt er að Ragnhildur eldri hafi látið byggja Hreggvið 1925. Börn Ragnhildar yngri voru Ólafur Gíslason "Óli Gísla" í Sandvík vegaverkstjóri og Gísli Ragnar Gíslason á Austurvelli, Háeyrarvöllum. Þekktur sem "Gísli í Kaupfélaginu " síðar fangavörður og lögga.
Skúmstaðahverfi
laugardagur, 27. desember 2025
Guðmundur Andrésson - "Gvendur Andrésar "
Guðmundur Andrésson (1902-1977) þekktur sem Gvendur Andrésar bjó á Skúmsstöðum (Hallanda). Bústýra hans var Guðrún Alda Helgadóttir (1930-2013) frá Borgarholti á Stokkseyri og Steinvarar Jónsdóttur. Sonur Öldu er "Helgi Ingvars" fyrrum sjómaður og skipstjóri. Alda starfaði allann sinn starfsaldur við fiskvinnslu og var með hressustu kerlingum á Bakkanum. Hún var síðast búsett á Sólvöllum.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)