Veðrið á Bakkanum

https://www.windfinder.com/forecast/eyrarbakki

laugardagur, 15. ágúst 2009

Aldamótahátið

 ALDAMÓTAHÁTÍÐ verður haldin á Eyrarbakka 15. og 16 ágúst. Markaðstorg verður á Gónhóli og skrúðganga verður farin frá barnaskólanum. Kjötsúpuhátíð verður við Húsið, Byggðasafn Árnesinga.

föstudagur, 15. maí 2009

Skemmtigarður í frystihúsi

 Árið 2006 keypti Árni Valdimarsson frá Kílhrauni á Skeiðum frystuhúsið á Eyrarbakka. Nú er hugmyndin að búa til lifandi skemmtigarð inni í frystihúsinu eins og Anna Sigríður Árnadóttir, dóttir Árna, sagði í spjalli við Morgunblaðið í dag.

miðvikudagur, 31. desember 2008

Eyrbekkingar kvaddir 2008

Elsa Björk Grétarsdóttir á Sólvangi. Ungabarn.
Halldór Guðmundsson á Selfossi. 90 ára.
Helgi Þorvaldsson á Gamla Hrauni.
Magnús Þórarinsson á Sæbergi.
Ragnar Böðvarsson á Þykkvaflöt.

miðvikudagur, 22. október 2008

Blysför að Kríunni

 Nemendur Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri fóru í gær í blysför að listaverkinu Kríunni eftir Sigurjón Ólafsson myndhöggvara, en í gær voru liðin 100 ár frá fæðingu listamannsins. Sigurjón Ólafsson fæddist í Einarshöfn á Eyrarbakka 21. október 1908. Hann ólst upp á Eyrarbakka og gekk þar í barnaskóla.

Morgunblaðið - 22. október 2008

sunnudagur, 27. júlí 2008

Nóg að sjá og skoða við ströndina

 Kajakaferðir eru farnar frá Stokkseyri og þar má einnig heimsækja Tónminjasetrið, Draugasafnið, Álfa og Tröllasafnið og Veiðisafnið svo eitthvað sé nefnt. Á Eyrarbakka má heimsækja Byggðasafn Árnesinga í Húsinu á Eyrarbakka, einu elsta og merkasta húsi landsins.

sunnudagur, 20. júlí 2008

Góður andi í Gónhól

 Viðtal við Árna Valdimarsson og Ninu Björg Knútsdóttir sem nýlega opnuðu menningarmiðstöð í Frystihúsinu. 

Morgunblaðið - 20. júlí 2008

https://timarit.is/page/4194868?iabr=on#page/n18/search/Eyrarbakka%20/inflections/true



föstudagur, 27. júní 2008

10. Jónsmessuhátíðin

 Eyrbekkingar efna til hátíðar í tilefni Jónsmessu um helgina. Nokkrir íbúar bjóða gestum til stofu, gengið verður um söguslóðir og kveikt í Jónsmessubrennu. 

 Hápunktur hátíðarinnar er Jónsmessubrenna í fjörunni vestan við þorpið á laugardagskvöld kl. 22.

24 stundir - 27. júní 2008