Elín Jónsdóttir (1886-1974) þekkt sem "Ella í Kirkjuhúsi" ættuð frá Laug í Biskupstungum Guðmannssonar frá Járngerðisstöðum í Grindavík. Elín var ekkja Valdimars trésmiðs Þórðarsonar ættaðan úr Landeyjum. Þau hófu búskap í Þórðarkoti er þá tilheyði Sandvíkurhrepp en fluttu á Bakkann 1937. Þau áttu fjögur börn. Elstur var Jón Guðmann Valdimars (1918-1997) er bjó á efri hæðinni í Kirkjuhúsi og þekktur sem "Manni". Kona hans var Stefanía Magnúsdóttir, (1921-2017) þekkt sem "Stebba í Kirkjuhúsi" og mjög drífandi kona í félagsmálum, ættuð frá Flögu í Flóa. Guðmann var trésmiður og hafði verkstæði sunnan við hús nærri sjógarðinum. Trésmiðjan brann á sjöunda tug síðustu aldar og varð ekki endurbyggð. Manni og Vala byggðu svo tilkomumikið einbýlishús austur á Háeyrarvöllum. Þau eignuðust 5 börn sem öll fluttust úr þorpinu. Manni var yfirsmiður við gerð brimvarnargarðsins við höfnina sem reistur var fyrir 60 árum og stendur enn.
Veðrið á Bakkanum
https://www.windfinder.com/forecast/eyrarbakki
fimmtudagur, 1. janúar 2026
Ármann í Vorhúsum
Ármann Guðmundsson (1908-1994) var þekktur sem "Ármann í Vorhúsum". Hann var garðyrkjubóndi, ættaður frá Akurey í Landeyjum, Jónssonar en móðir hans var Eyrún Jónsdóttir húsfreyja þar. Ármann var giftur Sigurveigu Jónasdóttir, (1909-2000) þekkt sem "Veiga" ættuð frá Rimakoti Landeyjum. Þau áttu eina dóttur, Fanney. Ármann ræktaði aðalega kartöflur og var með garða sína út á engjum eins og kallast löndin undir Breiðumýri.
SigurðurAri - "Siggi skó "
Sigurður Ari skósmiður Sveinsson þekktur sem "Siggi skó" (1892-1971) bjó á Sunnuhvoli við Búðarstíg á móti kirkjunni. Sveinn faðir hans var sjómaður og bjó á Ósi Sveinssonar bónda í Simbakoti er drukknaði 13. apríl 1870. (Faðir Þórunnar Sveinsdóttir í Vestmannaeyjum) Móðir Sigurðar var Ingunn Sigurðardóttir ættuð undan Eyjafjöllum. Bústýra Sigurðar var Hildur Guðmundsdóttir (1891-1966) frá Gýjarsteini. Sonur hennar var sr. Eiríkur J Eiríksson prestur á Þingvöllum. Guðmundur faðir hennar Guðmundsson var ferjumaður á Iðu, síðar bóndi á Óseyrarnesi um tíma en bjó síðast á Gýjarsteini Stokkseyri. Sigurður fótbronaði illa um borð í bát er hann var skipverji á, þá ungur maður og var af tekinn af fóturinn við hné eftir að sýking komst í og gékk hann síðan með tréfót. Ungur var Sigurður sjómaður á kútter "Valtýr" í Reykjavík en síðar útgerðarstjóri fyrir bát Páls Grímssonar heitins mág síns í Þorlákshöfn. Sigurður lærði skósmíði hjá Ebeneser skósmiðs í Hraungerði (Sjá Pálína Pálsdóttir) og starfaði við það síðan. Skósmíðaverkstæðið var í smáhýsi sem byggt var við Hraungerði en löngu búið að rífa. Eftir Sigurð lögðust skósmíðar af á Bakkanum.
miðvikudagur, 31. desember 2025
Pálína Páls - "Pálína í Hraungerði "
Pálína Pálsdóttir (1891-1983) bjó í Hraungerði við Búðarstíg. Pálína var ættuð af Strönd í Meðallandi. Móðir Pálínu var Þorgerður Halldórsdóttir trésmiðs á Rauðnefsstöðum. Pálína var ekkja Guðmundar skósmiðs Ebenesersonar gullsmiðs á Skúmsstöðum. Þau voru barnlaus. Pálína gaf sig mjög að félagsmálum og var meðhjálpari við kirkjuna. Pálína og Þorgerður voru þekktar sem "Hraungerðismæðgunar" Pálína missti föður sinn áður en hún fæddist, en hann veiktist af lungnabólgu í sjóróðri frá Eyrarbakka 1891. Þær mæðgur urðu síðan umsjónarmenn kirkjunnar. Hraungerði tengdist óbeint áfram starfi þjóðkirkjunnar þegar Haukur Guðlaugsson Söngmálastjóri eignaðist húsið. Guðlaugur kaupmaður "Laugi í Laugabúð" frændi þeirra mæðga ólst upp hjá Þorgerði og Haukur sonur hans og Ingibjargar Jónasdóttir var þar húsagangur í sinni æsku.
-Þó Pálína ætti enginn börn, þá var hún sérstaklega barngóð og gaukaði kexi eða súkkulaði að börnum sem áttu leið hjá. Oft fékk barnaskarinn á Vesturbakkanum að stunda leiki sína í kringum húsið hennar óáreitt.
Guðjón Öfjörð - "Gauji Ö"
Guðjón Öfjörð Sigfússon (1929--1994) þekktur sem "Gauji Ö" frá Lækjarmóti bjó í Stíghúsi á Búðarstíg og rak vélaverkstæði þar sunnan til á lóðinni við sjógarðinn. Sigfús faðir hans Öfjörð á Lækarmóti var ítustjóri og oft fenginn í jarðvinnuverkefni á ströndinni. Móðir Guðjóns var Lára Guðmundsdóttir frá Sólheimum í Gnúpverjahreppi. Guðjón var giftur Fanney Guðrúnu Magnúsdóttur úr Reykjavík, en afi hennar var Kjartan Guðmundsson á Stokkseyri. Guðjón og Fanney áttu 4 börn.
Þau féllu frá á árinu 2025
Ásta Ólafsdóttir (1936-2025) hún ólst upp hjá systkynunum Jóni Kristinn og Ástu Gunnarsbarna í Gunnarshúsi.
Bragi Andrésson (1946-2025) Hjalladæl. Bragi var ættaður frá Sperðli í Landeyjum og þekktur fyrir hrossarækt. Eftirlifandi kona hans er María Níelsen.
Emil Ragnarsson (1944-2025) Háeyrarvöllum. Emil var þekktur sauðfjárræktandi á Eyrarbakka. Eftirfarandi kona hans er Ingibjörg Guðmundsdóttir.
Sigríður Sæmundsdóttir Túngötu, þekkt sem 'Sigga Sæm'. Eftirlifandi eiginmaður hennar er Trausti Sigurðsson vörubifreiðastjóri.
þriðjudagur, 30. desember 2025
Sverrir Bjarnfinns - "Sverrir skipstjóri "
Sverrir skipstjóri Bjarnfinnsson (1920-1992) steinsmiðs á Búðarstíg Þórarinssonar bónda í Nýjabæ. Móðir hans var Rannveig Jónsdóttir hafnsögumanns í Melshúsum. (Sjá: Guðrún Bjarnfinnsdóttir) Sigurðssonar formanns í Neistakoti, Teitsson hafnsögumanns á Skúmsstöðum. Sverrir var giftur Guðlaugu Böðvarsdóttir (1922-2012) -þekkt sem "Lilla" - frá Einarshöfn Friðrikssonar bónda á Stönd í Landeyjum. Þau áttu tíu börn. Sverrir var skipstjóri á Þorláki Helga ÁR og átti farsælan sjómannsferil. Árið 1966 brann íbúðarhús þeirra á Búðarsignum til kaldra kola. Sverrir byggði á sama stað eitt fyrsta nútímalega einbýlishúsið á Eyrarbakka og að margra mati hið glæsilegasta. Eftir að skipstjóraferlinum lauk starfaði hann við netagerð í Óðinshúsi.
Gerast áskrifandi að:
Ummæli (Atom)