Veðrið á Bakkanum

https://www.windfinder.com/forecast/eyrarbakki

fimmtudagur, 1. janúar 2026

SigurðurAri - "Siggi skó "

Sigurður Ari skósmiður Sveinsson þekktur sem "Siggi skó" (1892-1971) bjó á Sunnuhvoli við Búðarstíg á móti kirkjunni. Sveinn faðir hans var sjómaður og bjó á Ósi Sveinssonar bónda í Simbakoti er drukknaði 13. apríl 1870. (Faðir Þórunnar Sveinsdóttir í Vestmannaeyjum) Móðir Sigurðar var Ingunn Sigurðardóttir ættuð undan Eyjafjöllum. Bústýra Sigurðar var Hildur Guðmundsdóttir (1891-1966) frá Gýjarsteini. Sonur hennar var sr. Eiríkur J Eiríksson prestur á Þingvöllum. Guðmundur faðir hennar Guðmundsson var ferjumaður á Iðu, síðar bóndi á Óseyrarnesi um tíma en bjó síðast á Gýjarsteini Stokkseyri. Sigurður fótbronaði illa um borð í bát er hann var skipverji á, þá ungur maður og var af tekinn af fóturinn við hné eftir að sýking komst í og gékk hann síðan með tréfót. Ungur var Sigurður sjómaður á kútter "Valtýr" í Reykjavík en síðar útgerðarstjóri fyrir bát Páls Grímssonar heitins mág síns í Þorlákshöfn. Sigurður lærði skósmíði hjá Ebeneser skósmiðs í Hraungerði (Sjá Pálína Pálsdóttir) og starfaði við það síðan. Skósmíðaverkstæðið var í smáhýsi sem byggt var við Hraungerði en löngu búið að rífa. Eftir Sigurð lögðust skósmíðar af á Bakkanum

Engin ummæli:

Skrifa ummæli