Pálína Pálsdóttir (1891-1983) bjó í Hraungerði við Búðarstíg. Pálína var ættuð af Strönd í Meðallandi. Móðir Pálínu var Þorgerður Halldórsdóttir trésmiðs á Rauðnefsstöðum. Pálína var ekkja Guðmundar skósmiðs Ebenesersonar gullsmiðs á Skúmsstöðum. Þau voru barnlaus. Pálína gaf sig mjög að félagsmálum og var meðhjálpari við kirkjuna. Pálína og Þorgerður voru þekktar sem "Hraungerðismæðgunar" Pálína missti föður sinn áður en hún fæddist, en hann veiktist af lungnabólgu í sjóróðri frá Eyrarbakka 1891. Þær mæðgur urðu síðan umsjónarmenn kirkjunnar. Hraungerði tengdist óbeint áfram starfi þjóðkirkjunnar þegar Haukur Guðlaugsson Söngmálastjóri eignaðist húsið. Guðlaugur kaupmaður "Laugi í Laugabúð" frændi þeirra mæðga ólst upp hjá Þorgerði og Haukur sonur hans og Ingibjargar Jónasdóttir var þar húsagangur í sinni æsku.
-Þó Pálína ætti enginn börn, þá var hún sérstaklega barngóð og gaukaði kexi eða súkkulaði að börnum sem áttu leið hjá. Oft fékk barnaskarinn á Vesturbakkanum að stunda leiki sína í kringum húsið hennar óáreitt.