Marel Oddgeir Þórarinsson (1898 - 1981) bjó í Einarshöfn eða svokölluðu Prestshúsi. Hann var fæddur í Nýjabæ Eyrarbakka en ætt hans lá á Hæðargarði og víðar í Landbroti. Móðir hans var Kristín Guðmundsdóttir. Kona hans var Sigríður Gunnarsdóttir frá Litlu Háeyri, en hún var ættuð frá Torfastöðum.
Börn þeirra voru Ingibjörg, Guðni og Guðfinnur er drukknaði á síldveiðum 1963 á m/b Erlingi VE eftir að hafa fallið útbyrðis úti fyrir Ingólfshöfða.
-Með skippera kaskeit á höfði gekk Marel nær daglega út að sjógarðshliði að vita skipaferða svo sem algengt var á fyrri tíð.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli