Veðrið á Bakkanum

https://www.windfinder.com/forecast/eyrarbakki

fimmtudagur, 25. desember 2025

Sigurður Andersen - "Siggi á Símstöðinni"

Sigurður Andersen (1932-2002) þekktur sem "Siggi á Símstöðinni" (Mörk) en áður í Bakaríinu sonur Lars Lauritz Andersen Larsen bakara á Eyrarbakka og Kolfinnu Þórarinsdóttur á Vegamótum. Sigurður var giftur Aira Kaarena Könönen frá Elimaki Finnlandi, þekkt sem "Kata".
Þau áttu tvö börn. Sigurður var fróður um sögu þorpsins og stúteraði örnefni er skráð höfðu verið sem og önnur í munnlegri geymd. Fyrir utan stöðvarstjóra starfið tók hann veðrið um margra ára skeið fyrir Veðurstofu Íslands og trekkti kirkjuklukkurnar. Á yngri árum keppti hann undir fána UMFE í þrístökki og glímu. Hann tók einnig þátt í skákmótum auk þess að koma að skipulagningu íþróttasvæðis fyrir félagið. Hann þjálfaði einnig konu sína "Kötu" í kúluvarpi sem hóf í kjölfarið keppnisferil með HSK og komst oft á verðlaunapall. Siggi var gjaldkeri Bárunnar á Eyrarbakka um árabil og gaf sig að hreppsnefndarmálum. Hann ræktaði kartöflur fyrir heimilið í áraraðir af mikilli natni og umhyggju. Sigurður byggði húsið "Hlíðskjálf" og þegar Póstur og Sími var seldur þar sem hann eyddi mestum hluta starfsævinar, settist hann í helgan stein og sneri sér að hugðarefnum sínum, örnefna söfnun og veðurathugunum.

Skúmstaðahverfi 

Engin ummæli:

Skrifa ummæli