Veðrið á Bakkanum

https://www.windfinder.com/forecast/eyrarbakki

miðvikudagur, 28. janúar 2026

Hjörtur í Káragerði

Hjörtur Leo Jónson (1918-2007) hreppstjóri bjó í Káragerði, þekktur sem "Hjörtur í Káragerði" ættaður úr Skagafirði. Hjörtur var giftur Sesselju Ástu Erlendsdóttur, skipstjóra á Stokkseyri (1921 - 1917) þekkt sem "Ásta í Káragerði" ættuð úr Rangárvallasýslu. Þau áttu þrjú börn. Hjörtur stundaði allmikla kartöflurækt en var auk þess hagleikssmiður.

Káragerði 

Skúmstaðahverfi 

sunnudagur, 11. janúar 2026

Vigfús Jónsson "Fúsi oddviti"

Vigfús Jónson oddviti (1903-1989) bjó í Garðabæ, eystra húsi, þekktur sem "Fúsi oddviti" faðir hans var steinsmiður í Reykjavík, en Fúsi var í fóstri á Eyrarbakka frá einsárs aldri hjá Tómasi Vigfússyni í Götuhúsum og Margréti Vigfúsdóttir. Bústýra hans var Vigfúsína Bjarnadóttir, þekkt sem "Sína". sem einnig var í fóstri þar sem barn. Á efri hæðinni bjó Sigfús bóndi Árnason (1859-1975) frá Hurðabaki í Flóa, þekktur sem "Fúsi gamli" en hann var ekkill eftir Önnu Tómasdóttir frá Götuhúsum (1894-1949) Þau áttu fjögur börn, þar á meðal var Aðalheiður í Ásgarði "Allý". Fúsi oddviti fór með framkvæmdastjórn hreppsins, Trésmiðju Eyrarbakka, beinamjölsverksmiðju, útgerðafélagsin Óðinn og Hraðfrystistöðvar Eyrarbakka, sjúkrasamlagsins og rafveitu Eyrarbakka um áratuga skeið í umboði þorpsbúa og Alþýðuflokksins og naut vinsælda en jafnframt umdeildur. Hann var og þátttakandi í félagsmálum, verkalýðsfélagsins Bárunnar og æðsti templar stúkunar, meðlimur í ungmennafélaginu, formaður í iðnaðarmannafélagi Árnessýslu og söng í kirkjukórnum auk þess að annast viðhaldsmál kirkjunnar. Fúsi var semsagt með puttana í öllu sem sneri að atvinnu og félagslífi í þorpinu og fórst það jafnan vel úr hendi.

Skúmstaðahverfi  Garðbær

laugardagur, 10. janúar 2026

Jórun Oddsdóttir

Þórunn Jórunn Oddsdóttir (1897-1989) gullsmiðs og símstöðvarstjóra Oddsonar, þekkt sem "Jórunn". Hún bjó í Mörk þar sem hún gengdi starfi simsöðvarstjóra eftir Magnús bróðir sinn og föður sem var fyrsti símstöðvarstjórinn. Oddur var ættaður frá Sámstöðum í Fljótshlíð. Móðir Jórunnar var Helga Magnúsdóttir frá Vatnsdal í Fljótshlíð hún vann einnig á símanum. Jórunn var ógift og barnlaus.

mánudagur, 5. janúar 2026

Eiríkur Run

Eiríkur Runólfsson (1928-2019) frá Blómsturvöllum, ættaðan af Fáskrúðsfirði, bjó á Ingólfi um nokkurra ára skeið. Þekktur sem "Eiríkur Run". Móðir hans var Guðlaug Emerentíana "Emma" á Blómsurvöllum. Eiríkur var giftur Stefaníu Þórðardóttir. (1930-2013) Þekkt sem "Stebba Eiríks" Faðir hennar Þórðarson var skipstjóri í Vestmannaeyjum. Börn þeirra voru fjögur. Eiríkur var lengst af fangavörður á Litla-Hrauni og allmörg ár formaður verka og sjómannafélagsins Báran á Eyrarbakka. Þau byggðu húsið 'Vesturbrún' vestast á Háeyrarvöllum. Bróðir Eiríks, Ragnar sem þekktur var sem "Raggi Run" bjó á Bólstað en það hús var rifið eftir Suðurlandsskjálfta 2008.

Skúmstaðahverfi Ingólf

sunnudagur, 4. janúar 2026

Laugi kaupmaður

Guðlaugur Pálsson (1896-1993) Þekktur sem "Laugi kaupmaður " bjó á Sjónarhóli (Laugabúð) ásamt konu sinni Ingibjörg Jónasdóttur (1905-1984) þekkt sem "Imba Lauga". Páll faðir hans Halldórsson var um tíma skósmiður í Bretlandi, ættaður úr Fljótshlíð. Laugi lærði líka þá iðn en árið 1917 stofnaði hann fyrstu verslun sína, Verslun Guðlaugs Pálssonar og um tíma rak hann nokkur fjölda búða á blómatíma þorpsins.  Móðir Lauga var Jóhanna Ingólfsdóttir Húnvetningur að ætt. Ingibjörg var systir Kristins í Garðhúsi, Jónasar Einarssonar og Guðleifar Gunnarsdóttur. Imba var listfeng og gerði ýmis verk unnin úr sjávargróðri, kuðungum og skeljum sem hún tíndi til í fjörunni. Voru það bæði veggmyndir og skartgripaskrín ýmiskonar. Þau áttu sex börn og þekktast þeirra var Haukur Söngmálastjóri.  (Sjá : Hraungerði.)

Skúmstaðahverfi Sjónarhóll

Bjarni í Kirkjubæ

Bjarni Loftsson (1895-1966) bjó í Kirkjubæ, ættaður frá Steinsholti í Gnúpverjahreppi. Kona hans var Guðrún Jónsdóttir, vestfirsk að ætt. Kirkjubæ lét reisa Ólafur Jónsson frá Þorlákshöfn. Bjarni bar mikl umhyggju fyrir öldruðum, sjúkum og einmanna fólki. Hann gerði sér far um að færa gleði inn á þau heimili. Þau hjónin tóku til sín börn til dvalar og hvíldar af ofsetnum heimilum þar sem þröngt var í búi. Hann var sjálfur sjúklingur í fjölda ára, en trúaður mjög.

Skúmstaðahverfi 

fimmtudagur, 1. janúar 2026

Ella í Kirkjuhúsi

Elín Jónsdóttir (1886-1974) þekkt sem "Ella í Kirkjuhúsi" ættuð frá Laug í Biskupstungum Guðmannssonar frá Járngerðisstöðum í Grindavík. Elín var ekkja Valdimars trésmiðs Þórðarsonar ættaðan úr Landeyjum. Þau hófu búskap í Þórðarkoti er þá tilheyði Sandvíkurhrepp en fluttu á Bakkann 1937. Þau áttu fjögur börn. Elstur var Jón Guðmann Valdimars (1918-1997) er bjó á efri hæðinni í Kirkjuhúsi og þekktur sem "Manni". Kona hans var Stefanía Magnúsdóttir, (1921-2017) þekkt sem "Stebba í Kirkjuhúsi" og mjög drífandi kona í félagsmálum, ættuð frá Flögu í Flóa. Guðmann var trésmiður og hafði verkstæði sunnan við hús nærri sjógarðinum. Trésmiðjan brann á sjöunda tug síðustu aldar og varð ekki endurbyggð. Manni og Vala byggðu svo tilkomumikið einbýlishús austur á Háeyrarvöllum. Þau eignuðust 5 börn sem öll fluttust úr þorpinu. Manni var yfirsmiður við gerð brimvarnargarðsins við höfnina sem reistur var fyrir 60 árum og stendur enn.

Skúmstaðahverfi 

Ármann í Vorhúsum

Ármann Guðmundsson (1908-1994) var þekktur sem "Ármann í Vorhúsum". Hann var garðyrkjubóndi, ættaður frá Akurey í Landeyjum, Jónssonar en móðir hans var Eyrún Jónsdóttir húsfreyja þar. Ármann var giftur Sigurveigu Jónasdóttir, (1909-2000) þekkt sem "Veiga" ættuð frá Rimakoti Landeyjum. Þau áttu eina dóttur, Fanney. Ármann ræktaði aðalega kartöflur og var með garða sína út á engjum eins og kallast löndin undir Breiðumýri.

Skúmstaðahverfi 

SigurðurAri - "Siggi skó "

Sigurður Ari skósmiður Sveinsson þekktur sem "Siggi skó" (1892-1971) bjó á Sunnuhvoli við Búðarstíg á móti kirkjunni. Sveinn faðir hans var sjómaður og bjó á Ósi Sveinssonar bónda í Simbakoti er drukknaði 13. apríl 1870. (Faðir Þórunnar Sveinsdóttir í Vestmannaeyjum) Móðir Sigurðar var Ingunn Sigurðardóttir ættuð undan Eyjafjöllum. Bústýra Sigurðar var Hildur Guðmundsdóttir (1891-1966) frá Gýjarsteini. Sonur hennar var sr. Eiríkur J Eiríksson prestur á Þingvöllum. Guðmundur faðir hennar Guðmundsson var ferjumaður á Iðu, síðar bóndi á Óseyrarnesi um tíma en bjó síðast á Gýjarsteini Stokkseyri. Sigurður fótbronaði illa um borð í bát er hann var skipverji á, þá ungur maður og var af tekinn af fóturinn við hné eftir að sýking komst í og gékk hann síðan með tréfót. Ungur var Sigurður sjómaður á kútter "Valtýr" í Reykjavík en síðar útgerðarstjóri fyrir bát Páls Grímssonar heitins mág síns í Þorlákshöfn. Sigurður lærði skósmíði hjá Ebeneser skósmiðs í Hraungerði (Sjá Pálína Pálsdóttir) og starfaði við það síðan. Skósmíðaverkstæðið var í smáhýsi sem byggt var við Hraungerði en löngu búið að rífa. Eftir Sigurð lögðust skósmíðar af á Bakkanum