Guðlaugur Pálsson (1896-1993) Þekktur sem "Laugi kaupmaður " bjó á Sjónarhóli (Laugabúð) ásamt konu sinni Ingibjörg Jónasdóttur (1905-1984) þekkt sem "Imba Lauga". Páll faðir hans Halldórsson var um tíma skósmiður í Bretlandi, ættaður úr Fljótshlíð. Laugi lærði líka þá iðn en árið 1917 stofnaði hann fyrstu verslun sína, Verslun Guðlaugs Pálssonar og um tíma rak hann nokkur fjölda búða á blómatíma þorpsins. Móðir Lauga var Jóhanna Ingólfsdóttir Húnvetningur að ætt. Ingibjörg var systir Kristins í Garðhúsi, Jónasar Einarssonar og Guðleifar Gunnarsdóttur. Imba var listfeng og gerði ýmis verk unnin úr sjávargróðri, kuðungum og skeljum sem hún tíndi til í fjörunni. Voru það bæði veggmyndir og skartgripaskrín ýmiskonar. Þau áttu sex börn og þekktast þeirra var Haukur Söngmálastjóri. (Sjá : Hraungerði.)
Skúmstaðahverfi Sjónarhóll
Engin ummæli:
Skrifa ummæli