Jón Ingi [Jonni] Sigurjónsson (1936-2020) Valdimarssonar og Lilju Böðvarsdóttir í Norðurkoti. Kona hans var Margrét [Magga] Ólafsdóttir frá Götuhúsum húsasmiðs, Ólafssonar vegaverkstjóra á Þorvaldseyri Bjarnasonar í Simbakoti. Jonni og Magga bjuggu á efri hæðinni í Sóltúni, en aldrei bjó neinn á efstu hæð þessa mikla húss sem byggt var um og eftir 1960. Jonni starfaði við ýmis verkamannastörf, síðast hjá Alpan ehf. Magga vann við afgreiðslu í kaupfélaginu á meðan það var og hét. Hún dó fyrir aldur fram aðeins 52 ára.
Böðvar [Böddi] Sigurjónsson (1938-2018) bróðir Jóns bjó á jarðhæðinni og hans frú var Hanna Guðmundsdóttir frá Stekkum. Böðvar stundaði umfangsmikla kartöflurækt seinni árin en ýmis verkamannastörf fyrrum.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli