Veðrið á Bakkanum

https://www.windfinder.com/forecast/eyrarbakki

sunnudagur, 20. júlí 2008

Góður andi í Gónhól

 Viðtal við Árna Valdimarsson og Ninu Björg Knútsdóttir sem nýlega opnuðu menningarmiðstöð í Frystihúsinu. 

Morgunblaðið - 20. júlí 2008

https://timarit.is/page/4194868?iabr=on#page/n18/search/Eyrarbakka%20/inflections/true



föstudagur, 27. júní 2008

10. Jónsmessuhátíðin

 Eyrbekkingar efna til hátíðar í tilefni Jónsmessu um helgina. Nokkrir íbúar bjóða gestum til stofu, gengið verður um söguslóðir og kveikt í Jónsmessubrennu. 

 Hápunktur hátíðarinnar er Jónsmessubrenna í fjörunni vestan við þorpið á laugardagskvöld kl. 22.

24 stundir - 27. júní 2008

sunnudagur, 1. júní 2008

Suðurlandsskjálftinn 29. mai 2008

 Þann 29. maí 2008 klukkan 15:45 reið jarðskjálfti að stærð 6,3 (Mw) yfir Suðurland. Um hefðbundinn Suðurlandsskjálfta var að ræða, með svipuð einkenni og jarðskjálftarnir sem urðu árið 2000. Skjálftinn fannst vel á Eyrarbakka sem víðar. Fjöldi eftirskjálfta fylgdu í kjölfarið og smá-kippir stóðu yfir í nokkra daga. 

Nokkur gömul hlaðin hús urðu fyrir talsverðum skemdum.

Húsin sem eyðilögðust:

  • Höfn
  • Ásgarður  
  • Smáratún
  • Bólstaður
  • Mundakot II
  • Vatnagarður 
  • Lundur

fimmtudagur, 29. maí 2008

Suðurlandsskjálftar

 

Stór jarðskjálfti 6,2 stig reið yfir kl.15:45 í dag. Fjöldi eftirskjálfta fylgdu í kjölfarið, smáir sem stórir. Mikið tjón varð á húsmunum flestra heimila á Árborgarsvæðinu og Ölfusi. Skemdir urðu á Óseyrarbrú og á veginum milli Eyrarbakka og Ölfusárósa. Á Bakkanum hrundu húsmunir og annað lauslegt niður á gólf í mörgum húsum. Garðhleðsla hrundi við eitt hús og einhverjar skemdir urðu á "Bragganum" svo dæmi sé nefnt. Fólki er talsvert brugðið og hyggjast einhverjir ætla að sofa í tjöldum eða fellihýsum í nótt..

laugardagur, 19. apríl 2008

Kvenfélagið 120 ára

  Kvenfélagskonur á Eyrarbakka gáfu í vikunni fæðingardeildinni á Selfossi nýtt tæki, súrefnismettunar-, blóðþrýstings- og hitamæli. 

Kvenfélagið á Eyr-arbakka fagnar 120 ára afmæli sínu á sumardaginn fyrsta en félagið var stofnað hinn 25. apríl 1888 af 16 konum, að tilstuðlan stúkunnar Eyrarrósarinnar. Félagið er elsta starfandi kvenfélagið á landsbyggðinni.

Nánar Morgunblaðið - 19. apríl 2008

þriðjudagur, 1. janúar 2008

Heilsugæslan lokar

 

Eyrarbakki 

Heilbrigðisstofnun hyggst loka heilsugæsluselum á Eyrarbakka og Stokkseyri frá og með 1. janúar vegna þess hversu aðsókn er dræm.


mánudagur, 31. desember 2007

Eyrbekkingar kvaddir 2007

Sigurbjörg Guðmundsdóttir á Sæbergi. 
Sólrún Sverrisdóttir á Selfossi.