Dana Marlin býr á Eyrarbakka og er iðinn brimbrettaiðkandi í Þorlákshöfn.
Veðrið á Bakkanum
https://www.windfinder.com/forecast/eyrarbakki
laugardagur, 4. nóvember 2023
laugardagur, 21. október 2023
Ljósin á Bakkanum
Það eru víða sprungnar perur í ljósastaurum á Eyrarbakka um þessar mundir og búið að vera svo um langt skeið. Það er hald manna að Sveitarfélagið Árborg sé að spara með því að endurnýja ekki sprungnar perur. Það hefur vissulega verið gefið út að Sveitarfélagið Árborg sé í alvarlegum fjárhagsvanda og leiti allra leiða til sparnaðar. Það virðist einmitt vera sú viðleitni sem hrjáir íbúanna við ströndina að Sveitarfélagið láti sparnaðinn koma einna helst þar niður. Skemmst er að minnast á ákvörðun um lokun sundlaugarinnar á Stokkseyri. Hugmyndir um að loka Barnaskólanum á Eyrarbakka, bókasafninu o.sv.fr. En það eru ákveðnar skildur sem Sveitarfélaginu ber að sinna, til dæmis umferðaröryggi og þá sérstaklega þar sem gangbrautir eru og umferð barna.
Ábyrgðin er töluverð, þá ekki síst ábyrgð kjörinna fulltrúa. Þess er því beðið með eftirvæntingu að fjármagn fáist til kaupa á nýjum perum.
Ábyrgðin er töluverð, þá ekki síst ábyrgð kjörinna fulltrúa. Þess er því beðið með eftirvæntingu að fjármagn fáist til kaupa á nýjum perum.
fimmtudagur, 12. október 2023
Bílvelta á Eyrarbakkavegi
Ökumaður missti stjórn á bíl sínum í krapa og slæmu veðri á Eyrarbakkavegi snemma í morgun. Ekki er vitað um slys á fólki.
mánudagur, 9. október 2023
Árborg: Gul viðvörun vegna vinds⚠️
Úrhellis rigning var á Árborgarsvæðinu í dag og nokkuð um að vart yrði við leka í húsum. Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir morgundaginn vegna vinds.
sunnudagur, 8. október 2023
Brot úr sögunni: Kartöfluræktin á Bakkanum
Árið 1870 voru ræktaðar kartöflur í
tveimur görðum í Einarshöfn hjá Gísla Jónssyni og á Skúmsstöðum hjá Teiti
Teitssyni, en Gísli er talinn vera brautryðjandi í kartöflurækt á Bakkanum. Sveinn Sveinsson í Hausthúsum er talinn ver fyrstur til þess að nýta þara sem áburð sem reyndist mjög vel. Bergsteinn Sveinsson í Brennu hóf fyrstur stórtæka kartöflurækt á 20. öld og margir fylgdu í kjölfarið. Helstu kartöflubændur á síðari hluta 20. aldar voru Birgir í Merkisteini, Siggi Guðjóns, Dóri á Sæfelli, Reynsi Bö, Gvendur á Sandi, Ármann í Vorhúsum, Mangi í Laufási og Friðjólf á Sæbóli.
Gul viðvörun Suðurland:⚠️
Veðurstofan spáir úrhellis rigningu á mánudag og hefur gefið út gula viðvörun.
Gerast áskrifandi að:
Ummæli (Atom)

