Veðrið á Bakkanum

https://www.windfinder.com/forecast/eyrarbakki

miðvikudagur, 24. desember 2025

Kristinn Pálsson - "Kiddi Páls "

Kristinn Pálsson (1903-1984) á Skúmsstöðum (Pálsbæ) þekktur sem Kiddi Páls. Móðir hans var Jónína Jónsdóttir á Skúmsstöðum. Hann var kvæntur Elísabetu Steinþóru Kristinsdóttur frá Flautafelli í Þistilfirði. Þau áttu 6 börn. Kiddi var gamall togarajaxl og því með orðfæri eftir því sem var alveg laust við guðsótta og væmni. Kiddi starfaði lengi hjá Plastiðjunni eftir að sjómennsku lauk.

Skúmstaðahverfi 

þriðjudagur, 23. desember 2025

Magnús Magnússon - "Mangi í Laufási"

Magnús Magnússon (1907-1988) var þekktur sem Mangi í Laufási. Hann var ættaður úr Ósgerði í Ölfusi en móðir hans Málfríður var frá Heiði í Holtum Jónsdóttir og bjó lengi með Þórði Þórðarsyni er Laufás byggði. Kona hans var Borghildur Thorarensen og áttu einn son. Mangi stundaði aðalega netaveiðar í Ölfusárósi, einn af brautryðjendum í kartöflurækt og stundaði umfangsmikla vikursteypu og sandsölu á tímabili. Hann var annar af síðustu selveiðimönnum á Bakkanum ásamt "Sæma á Sandi". Mangi var um árabil í stjórn veiðifélags Árnesinga og hreppsnendarmaður Eyrarbakkahrepps, en hann kom víða við í menningar og athafnamálum þorpsins á sinni tíð. Var einn af stofnendum útgerðarfélagsins Óðinn, forgöngumaður um byggingu Frystihússins og bátasmiður. - Í svölluðum "Mangaskúrum" kenndi margra grasa. Í einu skýlinu var aragrúi af skektum og árabátum sem hann hafði safnað að sér.

Einarshafnarhverfi 

Þórdís Gunnarsdóttir - "Dísa"

Þórdís Gunnarsdóttir (1854-1934) í Einarshöfn, dóttir Gunnars Jónssonar smiðs í Gunnarshúsi og Ingibjargar. Þekkt sem Dísa í Dísubæ, ekkja Jóhanns Elí formanns frá Steinskoti. Börn þeirra: systurnar Ingibjörg og Katrín, Bjarni skipstjóri á Jóhanni Þorkelssyni, Jóhann útgerðarmaður og fyrrum aðaleigandi Fiskiver sf. Þeir bræður gerðu út bátanna Jóhann Þorkelsson ÁR og Álaborg ÁR. 

Einarshafnarhverfi 

Þórir Kristinsson -"Þórir í Norðurbæ"

Þórir Vilmundur Kristinsonar á Skúmsstöðum (1937-2020) þekktur sem "Þórir í Mangabæ eða  Norðurbæ" bjó í Einarshöfn (Norðurbæ). Móðir hans var Guðrún Guðjónsdóttir. Kona hans var Hallbera (Halla) Jónsdóttir frá Vestmannaeyjum í þann tíð er þau bjuggu á Bakkanum. Þau eignuðust fimm börn. Tóki var mikið fyrir hesta og átti þá nokkra. Hann var á sínum tíma fangavörður á Litla-Hrauni en áður sjómaður í Þorlákshöfn og Eyrarbakka. Þau flutu síðar af Bakkanum og til Reykjavíkur og skildu. Síðast var Þórir til heimilis á hjúkrunarheimili Sólvöllum Eyrarbakka

mánudagur, 22. desember 2025

Marel Þórarinsson í Prestshúsi

Marel Oddgeir Þórarinsson (1898 - 1981) bjó í Einarshöfn eða svokölluðu Prestshúsi. Hann var fæddur í Nýjabæ Eyrarbakka en ætt hans lá á Hæðargarði og víðar í Landbroti. Móðir hans var Kristín Guðmundsdóttir. Kona hans var Sigríður Gunnarsdóttir frá Litlu Háeyri, en hún var ættuð frá Torfastöðum.
Börn þeirra voru Ingibjörg, Guðni og Guðfinnur er drukknaði á síldveiðum 1963 á m/b Erlingi VE eftir að hafa fallið útbyrðis úti fyrir Ingólfshöfða
-Með skippera kaskeit á höfði gekk Marel nær daglega út að sjógarðshliði að vita skipaferða svo sem algengt var á fyrri tíð.

Einarshafnarhverfi 

Sigmundur Guðjónsson - "Simmi"

Sigurmundur Guðjónsson (1903-1985) þekktur sem "Simmi" bjó í Einarshöfn. Faðir hans Jónsson bóndi á Skúmsstöðum ættaður frá Lyngum í Meðallandi. Móðir hans var Guðrún Vigfúsdóttir frá Efra-Seli á Stokkseyri. Kona Sigurmundar var Ágústa Magnúsdóttir (1905-1996) frá Miðhúsum Gnúpverjahreppi. Börn þeirra Guðrún og Jón Ingi listmálari á Selfossi. Sigurmundur átti nokkrar kindur og hænur sem hann annaðist, en auk þess starfaði hann í Plastiðjunni. Hann átti Ferguson traktor sem hann fór allra sinna ferða á.
Sigmundur annaðist vörslu á landgræðslusvæðinu vestan við þorpið og viðhald á girðingum fyrir Landgræðslu Ríkisins mestan hluta starfsævinar. 

Einarshafnarhverfi 

Guðjón Pálsson - "Gauji Páls"

Guðjón Pálsson í Höfn (1924-2014) þekktur sem "Gauji Páls" var frá Leifseyri á Eyrarbakka. Faðir Guðjóns var vélstjóri en hann drukknaði á Einarshafnasundi 1927 með mótorbátnum m/b Sæfara, er hét áður Framtíðin. Móðir Guðjóns var Elín Þórðardóttir frá Syðri-Hömrum. Guðjón var giftur Gyðríði Sigurðardóttir frá Steinsbæ, fyrrverandi leikskólastjóra í Brimveri. Guðjón var lengi línuskytta björgunarsveitarinnar og öflugur meðlimur slysavarnarfélagsins. Guðjón og Gyðríður áttu þrjú börn. 

Einarshafnarhverfi