Sigurður Andersen (1932-2002) þekktur sem "
Siggi á Símstöðinni" (
Mörk) en áður í Bakaríinu sonur Lars Lauritz Andersen Larsen bakara á
Eyrarbakka og Kolfinnu Þórarinsdóttur á
Vegamótum. Sigurður var giftur Aira Kaarena Könönen frá
Elimaki Finnlandi, þekkt sem "
Kata".
Þau áttu tvö börn. Sigurður var fróður um sögu þorpsins og stúteraði örnefni er skráð höfðu verið sem og önnur í munnlegri geymd. Fyrir utan stöðvarstjóra starfið tók hann veðrið um margra ára skeið fyrir
Veðurstofu Íslands og trekkti kirkjuklukkurnar. Á yngri árum keppti hann undir fána
UMFE í þrístökki og
glímu. Hann tók einnig þátt í skákmótum auk þess að koma að skipulagningu íþróttasvæðis fyrir félagið. Hann þjálfaði einnig konu sína "Kötu" í
kúluvarpi sem hóf í kjölfarið keppnisferil með
HSK og komst oft á verðlaunapall. Siggi var gjaldkeri
Bárunnar á Eyrarbakka um árabil og gaf sig að hreppsnefndarmálum. Hann ræktaði
kartöflur fyrir heimilið í áraraðir af mikilli natni og umhyggju. Sigurður byggði húsið "Hlíðskjálf" og þegar
Póstur og Sími var seldur þar sem hann eyddi mestum hluta starfsævinar, settist hann í helgan stein og sneri sér að hugðarefnum sínum, örnefna söfnun og veðurathugunum.
Skúmstaðahverfi