Anna Esther Ævar Jónsdóttir 87 ára frá Grindavík. Dóttir Gróu Jakobínu Jakobsdóttir í Vatnagarði Eyrarbakka og Jóns Erlingssonar er fórst með m/s Heklu 1941 *(þýskur kafbátur, U564, grandaði flutningaskipinu sem var á leið sinni frá Íslandi til Halifax í Kanada.)
Guðrún Thorarensen 90 ára frá Þorvaldseyri Eyrarbakka Ólafsdóttir og Jennýar þar á bæ. Maður hennar heitinn Hörður Thorarensen.
Haukur Guðlaugsson 93 ára Söngmálastjóri þjóðkirkjunnar sonur Guðlaugs kaupmanns og Ingibjargar á Sjónarhóli.
Kristín Vilhjálmsdóttir 83 ára frá Traðarhúsi Eyrarbakka dóttir Vilhjálms Einarssonar og Sigríðar Sigurðardóttur þar á bæ.
Rögnvaldur Bjarkar Árelíusson 79 ára frá Hvoli Eyrarbakka sonur sr Árelíusar Níelssonar og Ingibjargar Þórarinsdóttur þar á bæ.
Sigurður Kristinsson 59 ára gítarleikari í Sniglabandinu frá Vestmannaeyjum en á Eyrarbakka eftir gos. Sonur Kristinns Karlssonar og Bryndísar Sigurðardóttur.
Skúli Æ Steinsson 82 ára tamningamaður og hrossaræktandi frá Vatnagarði Eyrarbakka sonur Gróu Jakopsdóttir og Steins Einarssonar þar á bæ. Skúli lést af slysförum.
Þuríður Widnes Gunnarsdóttir 63 ára dóttir Gunnars Olsen vegaverkstjóra Péturssonar frá Widnes í Noregi og Ingu Kristínar Guðjónsdóttur frá Kaldbak Eyrarbakka. Eftirfarandi eiginmaður Þuríðar er Friðrik Sigurjónsson.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli