Veðrið á Bakkanum

https://www.windfinder.com/forecast/eyrarbakki

þriðjudagur, 2. júní 2015

Eyrarbakki árið 1973

 

Gömul loftmynd af Eyrarbakka, líklega frá því um 1973. Þorpið hefur nokkuð vaxið síðan.


laugardagur, 18. apríl 2015

Tónlistarhátíðin BAKKINN

 Alþýðutónlistahátíðin Bakkinn haldin í annað sinn. Það eru þau Unnur og Jón (Unijon) sem eru skipuleggjendur hátíðarinnar og margt þekktra listamanna koma fram daganna 23-25 apríl. 

Mogginn

sunnudagur, 15. febrúar 2015

Sólarkaffi á Bakkanum

 Nokkrir Vestfirðingar, sem búa á Suðurlandi, boða til sólarkaffis að hætti Vestfirðinga sunnudaginn 15. febrúar 2015 í Félagsheimilinu Stað á Eyrarbakka. Alsiða er í byggðum Vestfjarða að drekka sólarkaffi með pönnukökum þegar sólin sést aftur eftir skammdegið. Þessi siður hefur ekki verið á Suðurlandi enda sést sól þar alla daga ársins.

Vestfirðir 2015

miðvikudagur, 31. desember 2014

Eyrbekkingar kvaddir 2013

Aðalheiður Sigfúsdóttir í Ásgarði/Garðbæ.
Guðleif Vigfúsdóttir á Selfossi. 
Guðrún Guðjónsdóttir á Sólvöllum.100 ára.
Guðrún Alda Helgadóttir á Sólvöllum.
Hjörtur Guðmundsson í Reykjavík. 
Hörður Thorarensen sjómaður á Túnprýði/Selfossi 
Jón Bjarni Stefánsson framkvæmdastjóri á Háeyrarvöllum.
Lilja Inga Jónatansdóttir meinatæknir Ásabergi. 
Margrét Kristjánsdóttir matráður á Austurvelli.
Ólafia Sólveig Jónatansdóttir á Akri.
Óskar Guðmundsson tónlistarmaður á Selfossi. 
Sigurður Ingólfsson vörubílstjóri á Háeyrarvöllum.
Stefanía Þórðardóttir í Vesturbrún.
Svanborg Oddsdóttir kennari á Háeyrarvöllum.

Eyrbekkingar kvaddir 2014

Bjarni Jóhannsson skipstjóri á Túngötu. 91 árs. 
Erla Óskarsdóttir á Háeyrarvöllum.
Erlingur Viggóson skipasmiður Reykjavík. 
Gísli A Guðmundsson netagerðamaður í Þorlákshöfn. 
Gísli Sigurðsson vörubílstjóri á Hópi.
Guðjón Pálsson í Höfn/Selfossi . 90 ára. 
Hjördís Sigurðardóttir Hofi/ í Reykjavík 90 ára.
María Gísladóttir í Einarshöfn.
Regína Guðjónsdóttir í Ásheimum.
Stefán Stefánsson trésmiður Hliði /Reykjavík. 

fimmtudagur, 2. október 2014

Þróunarverkefni Sæbýlis tilbúið eftir tvö ár

 Fyrirtækið hefur í nokkur ár stundað umfangsmikið tilraunaeldi með japönsk sæeyru á Eyrarbakka. Er það nú komið í 300 fermetra húsnæði á staðnum. Vonast Ásgeir til þess að hægt verði að hefja útflutning árið 2016. Gangi áformin eftir gæti útflutningur á fleiri botnlægum sjávardýrum, svo sem sæbjúgum og ígulkerjum, fylgt í kjölfarið.

Morgunblaðið - 02. október 2014

sunnudagur, 24. ágúst 2014

Séra Sveinn hættur og farinn

 Sveinn Valgeirsson prestur á Eyrarbakka tekur í septemberbyrjun við embætti prests við Dómkirkjuna í Reykjavík eftir að hafa þjónað á Bakkanum frá árinu 2008.


Nánar í Mogganum í dag