Það var töluvert brim á Bakkanum í dag og skúraskýin dormuðu úti fyrir ströndinni.
Veðurspáin gerir ráð fyrir bjartviðri um helgina og kólnandi, en hlýnar aftur í næstu viku með rigningu.
Brim á Bakkanum
Það var töluvert brim á Bakkanum í dag og skúraskýin dormuðu úti fyrir ströndinni.
Veðurspáin gerir ráð fyrir bjartviðri um helgina og kólnandi, en hlýnar aftur í næstu viku með rigningu.
Brim á Bakkanum
Fjörustígur er malbikuð gönguleið milli Eyrarbakka og Stokkseyrar sem byrjað var á fyrir nokkrum árum.
Horft austur yfir Vesturbúðastekkinn
![]() |
| Leifar elsta verslunarhússins koma í ljós. |
Ný lyfta fyrir fatlaða hefur verið tekin í notkun í samkomuhúsinu Stað á Eyrarbakka. Það eru HM lyftur ehf. sem framkvæmdu verkið, en að því komu líka múrara, málarar, rafvirkjar, trésmiður og járnsmiðir. Kostnaður var um 2 millj.
![]() |
| Eyrarbakki beach |
Í Listagjánni í Bókasafni Árborgar á Selfossi má sjá sýninguna Miðbærinn – söguleg byggð, en hún inniheldur ljósmyndir af gömlum húsum á Eyrarbakka eftir Magnús Karel Hannesson. Magnús segir að á Eyrarbakka sé best varðveitta eldri götumynd á öllu Suðurlandi og að hún sé helsta sérkenni þorpsins. „Hér er ekta söguleg heild- stæð byggð með húsum, sem flest eru byggð frá 1890 til 1915.
Nánar í Morgunblaðinu í dag.
Smáhveli rak á fjörur við Eyrarbakka á dögunum. Talið er að hvalurinn hafi verið dauður þegar hann rak á land. Bæjarstarfsmenn sáu um að grafa hræið þarna í fjörunni.
Hin árlega Jónsmessuhátið fór fram um helgina í rjómablíðu eins og endranær og lauk með tónleikum í fjörunni þar sem Bakkabandið hélt uppi fjörinu fram að sólsetursstund.
Sjómannadagurinn var haldinn hátíðlegur á Eyrarbakka samkvæmt gamalli hefð og farið í stutta siglingu með börnin á hraðbátum björgunarsveitarinnar.
Jón Tryggvi Unnarsson hefur, ásamt eiginkonu sinni Unni Arndísardóttur, glætt Eyrarbakka lífi með tónleikahaldi á heimili þeirra hjóna. Nú hafa þessi listrænu hjón skipulagt tónlistarhátíð á Eyrarbakka þar sem alþýðutónlist og trúbadorar eru í aðalhlutverki. „Við höfum haldið tónleika á heimili okkar sem kallast Merki gil síðustu ár.
Nanar: DV í dag
Lítill skúr í fjörunni vekur athygli.
Staðurinn er nefndur Bakkabrim og er rétt við bryggjuna á Eyrarbakka. Þar verður rekið svokallað take-away kaffihús í sumar.
Um helgina verður því fagnað að endurbyggingu Eggjaskúrsins á Eyrarbakka er lokið en skúrinn stendur við Húsið sem hýsir Byggðasafn Árnesinga. Lýður Pálsson safnstjóri segir að sumum hafi þótt skrýtinn þessi áhugi heimamanna á að byggja skúr sem bar svo einkennilegt nafn. Skúrinn ætti sér hins vegar merkilega sögu og hann sagði almenna ánægju með að tekist hefði að koma honum upp.
Nánar í Mogganum í dag.
GERÐ sjóvarnargarða framan við byggðina á Eyrarbakka miðar vel. í ár er gert ráð fyrir að byggja upp 700 metra langan sjóvarnargarð í tveimur hlutum í stað gamla varnargarðsins sem fór illa í sjávarflóði í vetur.
Nánar í Mogganum í dag.
Iðnaðarráðherra Sverrir Hermannsson heimsótti í dag ásamt þingmönnum Suðurlands, verksmiðjuhús Alpan á Eyrarbakka, en ráðherrann ásamt þingmönnum var að kynna sér stöðu mála hjá Alpan og horfur, en ráðgert er að hefja framleiðslu á álpönnum og pottum fyrir árslok. Verksmiðjan var keypt frá Danmörku.
FULL vinnsla hófst að nýju í hraðfrystistöð Eyrarbakka eftir vikustöðvun vegna hráefnisskorts. Meginhluti afla togarans úr síðustu veiðiferð var ónýtur og hefur því ekkert verið unnið við vinnslu nýs fisks undanfarna viku. í gær lönduðu þrír bátar á Eyrarbakka, trollbátur og tveir snurvoðabátar og var afli ágætur samkvæmt Morgunblaðinu í dag.
"Krian”, verk Sigurjóns Ólafssonar myndhöggvara, sem reist var á Eyrarbakka I gær í þakklætis og heiðursskyni við Ragnar Jónsson í Smára — en hann er raunar frá Mundakoti á Eyrarbakka.
Um er að ræða stærsta listaverk sinnar tegundar hér á landi.
Dagblaðið - 12. janúar 1981
Prestshjónin Aðalheiður Hjartardóttir og séra Valgeir Ástráðsson voru kvödd af eldriborgurum a Eyrarbakka eftir nærri átta ára búsetu og þjónustu í þorpinu.
1950
Það var árið 1950 að Kaupfélag Amessinga lét rífa gömul verslunarhús á Eyrarbakka og flytja úr þeim timbur til Þorlákshafnar til að nota í byggingu nýs saltf iskverkunarhúss. Verslunarhúsin á Eyrarbakka, sem höfðu verið í eigu Kaupfélags Ámessinga í um 10 ár þegar þau voru rifin, áttu sér næstum tveggja alda sögu.