Veðrið á Bakkanum

https://www.windfinder.com/forecast/eyrarbakki

föstudagur, 1. maí 2020

Mannskapaveðrið 1883

 Jón J Bíldfell fjallar um mannskaðaveðrið 1883 og viðureign sjómanna við brimið.

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 1934

Saga Eyrarbakka

 Það tók Vigfús Guðmundsson frá Keldum 28 ár að skrifa sögu Eyrarbakka. Vigfús var vel þekktur fræðaþulur á sínum tíma. Saga Eyrarbakka var gefin út 1944 í tveim bindum.

Alþýðublaðið - 19. nóvember 1944

mánudagur, 27. apríl 2020

Sundlaug Stokkseyrar

 

Skjólgirðing við sundlaug Stokkseyrar hefur verið endurnýjuð að hluta og hækkuð. Það voru Braggahús ehf og Hlið við Hlið ehf sem framkvæmdu.

fimmtudagur, 23. apríl 2020

Stórabóla 1707-1709

 Stórabóla gekk um landið á árunum 1707-1709. Pestin barst til landsins með skipi sem kom til Eyrarbakka. 

Eyrarbakki var eini verslunarstað- urinn í stærsta verslunarumdæmi landsins, Árnes-, Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu. Á því svæði bjuggu rúmlega 11.000 manns af þeim 50.000 sem í landinu voru.

Nánar: Morgunblaðið - 23. apríl 2020

fimmtudagur, 19. mars 2020

Vitaleiðin

 Það er ný ferða­ manna leið í mótun sem beinir athygli ferðafólks að nýju svæði í umhverfi Sveitarfélagsins Ölfuss, Eyrarbakka og Stokkseyri.

 Þessi leið dregur fram þá miklu sögu og menningu sem er til staðar á svæðinu sem og alla upplifunarmöguleikana í afþreyingu og náttúru. Vitaleiðin er 45 km leið sem nær frá Selvogi að Knarrarósvita rétt við Stokkseyri í Árborg.

Bændablaðið - 19. mars 2020

miðvikudagur, 11. mars 2020

Ný útistofa bætist við leikskólann Árbæ

 

Verið er að taka í notkun nýja útistofu fyrir leikskólann Árbæ á Selfossi, en mikil fjölgun barna í bæjarfélaginu hefur kallað á skjótar lausnir til að útrýma biðlistum eftir leikskólaplássi. Það er Hamar og Strik ehf sem byggir.

þriðjudagur, 31. desember 2019

Eyrbekkingar kvaddir 2019

Eiríkur Runólfsson fangavörður í Vesturbrún/Sólvöllum 90 ára.
Sigurður Eiríksson vörubílstjóri á Garðafelli 91 árs.