Vilhjálmur Kristinm Einarsson (1894 -1989) bóndi í Traðarhúsi, þekktur sem Villi í Tröð. Móðir hans Aldís Guðmundsdóttir smiðs frá Eimu. Kona hans Sigríður Sigurðardóttir frá Vatnagarði. Börn þeirra Eydís (Eyja) og Kristín (Stína). Villi hafði lengst af kýr, kindur og hænsni auk ýmissa verkamannastarfa í þorpinu svo sem við sjógarðshleðslu og fiskvinnslu. Föðurafi Villa var Jón Guðmundsson bóndi á Hreiðri í Holtum.
Veðrið á Bakkanum
https://www.windfinder.com/forecast/eyrarbakki
fimmtudagur, 25. desember 2025
Sigurður Andersen - "Siggi á Símstöðinni"
Sigurður Andersen (1932-2002) þekktur sem "Siggi á Símstöðinni" (Mörk) en áður í Bakaríinu sonur Lars Lauritz Andersen Larsen bakara á Eyrarbakka og Kolfinnu Þórarinsdóttur á Vegamótum. Sigurður var giftur Aira Kaarena Könönen frá Elimaki Finnlandi, þekkt sem "Kata".
Þau áttu tvö börn. Sigurður var fróður um sögu þorpsins og stúteraði örnefni er skráð höfðu verið sem og önnur í munnlegri geymd. Fyrir utan stöðvarstjóra starfið tók hann veðrið um margra ára skeið fyrir Veðurstofu Íslands og trekkti kirkjuklukkurnar. Á yngri árum keppti hann undir fána UMFE í þrístökki og glímu. Hann tók einnig þátt í skákmótum auk þess að koma að skipulagningu íþróttasvæðis fyrir félagið. Hann þjálfaði einnig konu sína "Kötu" í kúluvarpi sem hóf í kjölfarið keppnisferil með HSK og komst oft á verðlaunapall. Siggi var gjaldkeri Bárunnar á Eyrarbakka um árabil og gaf sig að hreppsnefndarmálum. Hann ræktaði kartöflur fyrir heimilið í áraraðir af mikilli natni og umhyggju. Sigurður byggði húsið "Hlíðskjálf" og þegar Póstur og Sími var seldur þar sem hann eyddi mestum hluta starfsævinar, settist hann í helgan stein og sneri sér að hugðarefnum sínum, örnefna söfnun og veðurathugunum.
miðvikudagur, 24. desember 2025
Kristinn Páls - "Kiddi Páls "
Kristinn Pálsson (1903-1984) á Skúmsstöðum (Pálsbæ) þekktur sem Kiddi Páls. Móðir hans var Jónína Jónsdóttir á Skúmsstöðum. Hann var kvæntur Elísabetu Steinþóru Kristinsdóttur frá Flautafelli í Þistilfirði. Þau áttu 6 börn. Kiddi var gamall togarajaxl og því með orðfæri eftir því sem var alveg laust við guðsótta og væmni. Kiddi starfaði lengi hjá Plastiðjunni eftir að sjómennsku lauk.
þriðjudagur, 23. desember 2025
Magnús Magnússon - "Mangi í Laufási"
Magnús Magnússon (1907-1988) var þekktur sem Mangi í Laufási. Hann var ættaður úr Ósgerði í Ölfusi en móðir hans Málfríður var frá Heiði í Holtum Jónsdóttir og bjó lengi með Þórði Þórðarsyni er Laufás byggði. Kona hans var Borghildur Thorarensen og áttu einn son. Mangi stundaði aðalega netaveiðar í Ölfusárósi, einn af brautryðjendum í kartöflurækt og stundaði umfangsmikla vikursteypu og sandsölu á tímabili. Hann var annar af síðustu selveiðimönnum á Bakkanum ásamt "Sæma á Sandi". Mangi var um árabil í stjórn veiðifélags Árnesinga og hreppsnendarmaður Eyrarbakkahrepps, en hann kom víða við í menningar og athafnamálum þorpsins á sinni tíð. Var einn af stofnendum útgerðarfélagsins Óðinn, forgöngumaður um byggingu Frystihússins og bátasmiður. - Í svölluðum "Mangaskúrum" kenndi margra grasa. Í einu skýlinu var aragrúi af skektum og árabátum sem hann hafði safnað að sér.
Þórdís Gunnars - "Dísa"
Þórdís Gunnarsdóttir (1854-1934) í Einarshöfn, dóttir Gunnars Jónssonar smiðs í Gunnarshúsi og Ingibjargar. Þekkt sem Dísa í Dísubæ, ekkja Jóhanns Elí formanns frá Steinskoti. Börn þeirra: systurnar Ingibjörg og Katrín, Bjarni skipstjóri á Jóhanni Þorkelssyni, Jóhann útgerðarmaður og fyrrum aðaleigandi Fiskiver sf. Þeir bræður gerðu út bátanna Jóhann Þorkelsson ÁR og Álaborg ÁR.
Þórir Kristins -"Þórir í Norðurbæ"
Þórir Vilmundur Kristinsonar á Skúmsstöðum (1937-2020) þekktur sem "Þórir í Mangabæ eða Norðurbæ" bjó í Einarshöfn (Norðurbæ). Móðir hans var Guðrún Guðjónsdóttir. Kona hans var Hallbera (Halla) Jónsdóttir frá Vestmannaeyjum í þann tíð er þau bjuggu á Bakkanum. Þau eignuðust fimm börn. Tóki var mikið fyrir hesta og átti þá nokkra. Hann var á sínum tíma fangavörður á Litla-Hrauni en áður sjómaður í Þorlákshöfn og Eyrarbakka. Þau flutu síðar af Bakkanum og til Reykjavíkur og skildu. Síðast var Þórir til heimilis á hjúkrunarheimili Sólvöllum Eyrarbakka.
mánudagur, 22. desember 2025
Marel Þórarins
Marel Oddgeir Þórarinsson (1898 - 1981) bjó í Einarshöfn eða svokölluðu Prestshúsi. Hann var fæddur í Nýjabæ Eyrarbakka en ætt hans lá á Hæðargarði og víðar í Landbroti. Móðir hans var Kristín Guðmundsdóttir. Kona hans var Sigríður Gunnarsdóttir frá Litlu Háeyri, en hún var ættuð frá Torfastöðum.
Börn þeirra voru Ingibjörg, Guðni og Guðfinnur er drukknaði á síldveiðum 1963 á m/b Erlingi VE eftir að hafa fallið útbyrðis úti fyrir Ingólfshöfða.
-Með skippera kaskeit á höfði gekk Marel nær daglega út að sjógarðshliði að vita skipaferða svo sem algengt var á fyrri tíð.
Gerast áskrifandi að:
Ummæli (Atom)