Sigurður Ari skósmiður Sveinsson þekktur sem "Siggi skó" (1892-1971) bjó á
Sunnuhvoli við
Búðarstíg á móti kirkjunni. Sveinn faðir hans var sjómaður og bjó á Ósi Sveinssonar bónda í Simbakoti er drukknaði 13. apríl 1870. (Faðir Þórunnar Sveinsdóttir í Vestmannaeyjum) Móðir Sigurðar var Ingunn Sigurðardóttir ættuð undan
Eyjafjöllum. Bústýra Sigurðar var
Hildur Guðmundsdóttir (1891-1966) frá
Gýjarsteini. Sonur hennar var
sr. Eiríkur J Eiríksson prestur á Þingvöllum. Guðmundur faðir hennar Guðmundsson var ferjumaður á
Iðu, síðar bóndi á Óseyrarnesi um tíma en bjó síðast á
Gýjarsteini Stokkseyri. Sigurður fótbronaði illa um borð í bát er hann var skipverji á, þá ungur maður og var af tekinn af fóturinn við hné eftir að sýking komst í og gékk hann síðan með tréfót. Ungur var Sigurður sjómaður á kútter "
Valtýr" í
Reykjavík en síðar útgerðarstjóri fyrir bát Páls Grímssonar heitins mág síns í Þorlákshöfn. Sigurður lærði skósmíði hjá
Ebeneser skósmiðs í
Hraungerði (Sjá
Pálína Pálsdóttir) og starfaði við það síðan. Skósmíðaverkstæðið var í smáhýsi sem byggt var við Hraungerði en löngu búið að rífa. Eftir Sigurð lögðust skósmíðar af á
Bakkanum.