Það var rólegt á Bakkanum þetta kvöld, sem við hittum þremenningana að máli, svo við löbbuðum út á aðalgötuna innan um lítil og heimilisleg hús með sterka persónutöfra.....
Veðrið á Bakkanum
sunnudagur, 3. júní 1984
föstudagur, 3. febrúar 1984
Fólk kallað til vinnu
Sæunn Sæmundsdóttir hefur landað 50 tonnum af fiski í Frystihúsinu og er vinna þar að hefjast að nýju eftir tveggja mánaða pásu.
laugardagur, 31. desember 1983
Eyrbelkingar kvaddir 1983
þriðjudagur, 27. desember 1983
Frystihúsið 40 ára
Hraðfrystistöð Eyrarbakka heldur upp á 40 ára afmæli sitt um þessar mundir. Byrjað var að grafa fyrir húsinu á Þorláksmessu árið 1943 og tók það til starfa voriö eftir.
Nánar í DV í dag.
fimmtudagur, 22. desember 1983
þriðjudagur, 6. desember 1983
Báran áttræð
LAUGARDAGINN 26. nóvember var haldið afmælishóf í tilefni 80 ára afmælis Verkalýósfélagsins Bárunnar á Eyrarbakka. Báran var stofnuð í desember árið 1903, og var hið þriðja í röð samnefndra verkamannafélaga, sem stofnuð voru upp úr aldamótunum.
sunnudagur, 16. október 1983
Vinnsla hafin a ný í frystihúsi
FULL vinnsla hófst að nýju í hraðfrystistöð Eyrarbakka eftir vikustöðvun vegna hráefnisskorts. Meginhluti afla togarans úr síðustu veiðiferð var ónýtur og hefur því ekkert verið unnið við vinnslu nýs fisks undanfarna viku. í gær lönduðu þrír bátar á Eyrarbakka, trollbátur og tveir snurvoðabátar og var afli ágætur samkvæmt Morgunblaðinu í dag.