Veðrið á Bakkanum

https://www.windfinder.com/forecast/eyrarbakki

fimmtudagur, 2. október 2014

Þróunarverkefni Sæbýlis tilbúið eftir tvö ár

 Fyrirtækið hefur í nokkur ár stundað umfangsmikið tilraunaeldi með japönsk sæeyru á Eyrarbakka. Er það nú komið í 300 fermetra húsnæði á staðnum. Vonast Ásgeir til þess að hægt verði að hefja útflutning árið 2016. Gangi áformin eftir gæti útflutningur á fleiri botnlægum sjávardýrum, svo sem sæbjúgum og ígulkerjum, fylgt í kjölfarið.

Morgunblaðið - 02. október 2014

sunnudagur, 24. ágúst 2014

Séra Sveinn hættur og farinn

 Sveinn Valgeirsson prestur á Eyrarbakka tekur í septemberbyrjun við embætti prests við Dómkirkjuna í Reykjavík eftir að hafa þjónað á Bakkanum frá árinu 2008.


Nánar í Mogganum í dag 

föstudagur, 11. apríl 2014

Ljósin kveikt í búðinni

 Verslunarrekstur á Eyrarbakka er hafinn á nýjan leik eftir um það bil eins mánaðar stopp. Hjónin Eggert Valur Guðmundsson og Eygló Har Sigríðardóttir eru að fara af stað með verslunina Bakkann og opna á morgun, laugardag. Þau leigja aðstöðu og húsnæði af Olís og sjá jafnframt um eldsneytisafgreiðslu.

Mogginn

miðvikudagur, 14. ágúst 2013

Tónleikar á Bakkanum

 Jón Tryggvi Unnarsson hefur, ásamt eiginkonu sinni Unni Arndísardóttur, glætt Eyrarbakka lífi með tón­leikahaldi á heimili þeirra hjóna. Nú hafa þessi listrænu hjón skipulagt tónlistarhátíð á Eyrar­bakka þar sem alþýðutónlist og trúbadorar eru í aðalhlutverki. „Við höfum haldið tónleika á heimili okkar sem kallast Merki­ gil síðustu ár.

Nanar: DV í dag 

laugardagur, 1. júní 2013

Sjómannadagurinn og aðrar hátíðir

 Sjómannadagurinn haldinn hátíðlegur á Eyrarbakka og Stokkseyri. 2.júní

17. Júní 

Jónsmessuhátíðin 22.júní


Bryggjuhátíð á Stokkseyri 12-14júlí

Aldamótahátið Eyrarbakka 10-11 ágúst 

mánudagur, 4. mars 2013

Gamli-Barnaskólinn til sölu

 Tvílyft einbýli við Búðarstíg á Eyrarbakka 210,4 fm hús á 500 fm leigulóð er til sölu.

Fréttablaðið í dag. 

mánudagur, 31. desember 2012

Eyrbekkingar kvaddir 2012

Guðlaug Böðvarsdóttir á Búðarstíg.
Gyðríður Sigurðardóttir leikskólastjóri á Höfn.
Ragna Jónsdóttir í Hjalladæl.
William Þór Hagalín bókari og fv. Sveitastjóri á Háeyrarvöllum.