Ingvar Halldórsson í Framnesi, (1897-1987) þekktur sem Ingvar í Hliði. Móðir hans var Guðfinna Jónsdóttir frá Arabæjarhjáleigu. Ingvar bjó með Steinunni Jónsdóttir frá Þorgrímsstöðum, ekkju Stefáns Bjarnasonar í Stokkseyrarseli, en þau áttu 6 börn. Ingvar starfaði lengi sem flatningsmaður í Frystihúsinu en heimafyrir dundaði hann við að rækta kartöflur og grenitré. Fóstursonur hans var Stefán Stefánsson smiður.
Veðrið á Bakkanum
https://www.windfinder.com/forecast/eyrarbakki
laugardagur, 21. mars 2026
miðvikudagur, 28. janúar 2026
Hjörtur í Káragerði
Hjörtur Leo Jónson (1918-2007) hreppstjóri bjó í Káragerði, þekktur sem "Hjörtur í Káragerði" ættaður úr Skagafirði. Hjörtur var giftur Sesselju Ástu Erlendsdóttur, skipstjóra á Stokkseyri (1921 - 1917) þekkt sem "Ásta í Káragerði" ættuð úr Rangárvallasýslu. Þau áttu þrjú börn. Hjörtur stundaði allmikla kartöflurækt en var auk þess hagleikssmiður.
Káragerði
sunnudagur, 11. janúar 2026
Vigfús Jónsson "Fúsi oddviti"
Vigfús Jónson oddviti (1903-1989) bjó í Garðabæ, eystra húsi, þekktur sem "Fúsi oddviti" faðir hans var steinsmiður í Reykjavík, en Fúsi var í fóstri á Eyrarbakka frá einsárs aldri hjá Tómasi Vigfússyni í Götuhúsum og Margréti Vigfúsdóttir. Bústýra hans var Vigfúsína Bjarnadóttir, þekkt sem "Sína". sem einnig var í fóstri þar sem barn. Á efri hæðinni bjó Sigfús bóndi Árnason (1859-1975) frá Hurðabaki í Flóa, þekktur sem "Fúsi gamli" en hann var ekkill eftir Önnu Tómasdóttir frá Götuhúsum (1894-1949) Þau áttu fjögur börn, þar á meðal var Aðalheiður í Ásgarði "Allý". Fúsi oddviti fór með framkvæmdastjórn hreppsins, Trésmiðju Eyrarbakka, beinamjölsverksmiðju, útgerðafélagsin Óðinn og Hraðfrystistöðvar Eyrarbakka, sjúkrasamlagsins og rafveitu Eyrarbakka um áratuga skeið í umboði þorpsbúa og Alþýðuflokksins og naut vinsælda en jafnframt umdeildur. Hann var og þátttakandi í félagsmálum, verkalýðsfélagsins Bárunnar og æðsti templar stúkunar, meðlimur í ungmennafélaginu, formaður í iðnaðarmannafélagi Árnessýslu og söng í kirkjukórnum auk þess að annast viðhaldsmál kirkjunnar. Fúsi var semsagt með puttana í öllu sem sneri að atvinnu og félagslífi í þorpinu og fórst það jafnan vel úr hendi.
Skúmstaðahverfi Garðbær
laugardagur, 10. janúar 2026
Jórun Oddsdóttir
Þórunn Jórunn Oddsdóttir (1897-1989) gullsmiðs og símstöðvarstjóra Oddsonar, þekkt sem "Jórunn". Hún bjó í Mörk þar sem hún gengdi starfi simsöðvarstjóra eftir Magnús bróðir sinn og föður sem var fyrsti símstöðvarstjórinn. Oddur var ættaður frá Sámstöðum í Fljótshlíð. Móðir Jórunnar var Helga Magnúsdóttir frá Vatnsdal í Fljótshlíð hún vann einnig á símanum. Jórunn var ógift og barnlaus.
Skúmstaðahverfi Mörk
mánudagur, 5. janúar 2026
Eiríkur Run
Eiríkur Runólfsson (1928-2019) frá Blómsturvöllum, ættaðan af Fáskrúðsfirði, bjó á Ingólfi um nokkurra ára skeið. Þekktur sem "Eiríkur Run". Móðir hans var Guðlaug Emerentíana "Emma" á Blómsurvöllum. Eiríkur var giftur Stefaníu Þórðardóttir. (1930-2013) Þekkt sem "Stebba Eiríks" Faðir hennar Þórðarson var skipstjóri í Vestmannaeyjum. Börn þeirra voru fjögur. Eiríkur var lengst af fangavörður á Litla-Hrauni og allmörg ár formaður verka og sjómannafélagsins Báran á Eyrarbakka. Þau byggðu húsið 'Vesturbrún' vestast á Háeyrarvöllum. Bróðir Eiríks, Ragnar sem þekktur var sem "Raggi Run" bjó á Bólstað en það hús var rifið eftir Suðurlandsskjálfta 2008.
Skúmstaðahverfi Ingólf
sunnudagur, 4. janúar 2026
Laugi kaupmaður
Guðlaugur Pálsson (1896-1993) Þekktur sem "Laugi kaupmaður " bjó á Sjónarhóli (Laugabúð) ásamt konu sinni Ingibjörg Jónasdóttur (1905-1984) þekkt sem "Imba Lauga". Páll faðir hans Halldórsson var um tíma skósmiður í Bretlandi, ættaður úr Fljótshlíð. Laugi lærði líka þá iðn en árið 1917 stofnaði hann fyrstu verslun sína, Verslun Guðlaugs Pálssonar og um tíma rak hann nokkur fjölda búða á blómatíma þorpsins. Móðir Lauga var Jóhanna Ingólfsdóttir Húnvetningur að ætt. Ingibjörg var systir Kristins í Garðhúsi, Jónasar Einarssonar og Guðleifar Gunnarsdóttur. Imba var listfeng og gerði ýmis verk unnin úr sjávargróðri, kuðungum og skeljum sem hún tíndi til í fjörunni. Voru það bæði veggmyndir og skartgripaskrín ýmiskonar. Þau áttu sex börn og þekktast þeirra var Haukur Söngmálastjóri. (Sjá : Hraungerði.)
Skúmstaðahverfi Sjónarhóll
Bjarni í Kirkjubæ
Bjarni Loftsson (1895-1966) bjó í Kirkjubæ, ættaður frá Steinsholti í Gnúpverjahreppi. Kona hans var Guðrún Jónsdóttir, vestfirsk að ætt. Kirkjubæ lét reisa Ólafur Jónsson frá Þorlákshöfn. Bjarni bar mikl umhyggju fyrir öldruðum, sjúkum og einmanna fólki. Hann gerði sér far um að færa gleði inn á þau heimili. Þau hjónin tóku til sín börn til dvalar og hvíldar af ofsetnum heimilum þar sem þröngt var í búi. Hann var sjálfur sjúklingur í fjölda ára, en trúaður mjög.
fimmtudagur, 1. janúar 2026
Ella í Kirkjuhúsi
Elín Jónsdóttir (1886-1974) þekkt sem "Ella í Kirkjuhúsi" ættuð frá Laug í Biskupstungum Guðmannssonar frá Járngerðisstöðum í Grindavík. Elín var ekkja Valdimars trésmiðs Þórðarsonar ættaðan úr Landeyjum. Þau hófu búskap í Þórðarkoti er þá tilheyði Sandvíkurhrepp en fluttu á Bakkann 1937. Þau áttu fjögur börn. Elstur var Jón Guðmann Valdimars (1918-1997) er bjó á efri hæðinni í Kirkjuhúsi og þekktur sem "Manni". Kona hans var Stefanía Magnúsdóttir, (1921-2017) þekkt sem "Stebba í Kirkjuhúsi" og mjög drífandi kona í félagsmálum, ættuð frá Flögu í Flóa. Guðmann var trésmiður og hafði verkstæði sunnan við hús nærri sjógarðinum. Trésmiðjan brann á sjöunda tug síðustu aldar og varð ekki endurbyggð. Manni og Vala byggðu svo tilkomumikið einbýlishús austur á Háeyrarvöllum. Þau eignuðust 5 börn sem öll fluttust úr þorpinu. Manni var yfirsmiður við gerð brimvarnargarðsins við höfnina sem reistur var fyrir 60 árum og stendur enn.
Ármann í Vorhúsum
Ármann Guðmundsson (1908-1994) var þekktur sem "Ármann í Vorhúsum". Hann var garðyrkjubóndi, ættaður frá Akurey í Landeyjum, Jónssonar en móðir hans var Eyrún Jónsdóttir húsfreyja þar. Ármann var giftur Sigurveigu Jónasdóttir, (1909-2000) þekkt sem "Veiga" ættuð frá Rimakoti Landeyjum. Þau áttu eina dóttur, Fanney. Ármann ræktaði aðalega kartöflur og var með garða sína út á engjum eins og kallast löndin undir Breiðumýri.
SigurðurAri - "Siggi skó "
Sigurður Ari skósmiður Sveinsson þekktur sem "Siggi skó" (1892-1971) bjó á Sunnuhvoli við Búðarstíg á móti kirkjunni. Sveinn faðir hans var sjómaður og bjó á Ósi Sveinssonar bónda í Simbakoti er drukknaði 13. apríl 1870. (Faðir Þórunnar Sveinsdóttir í Vestmannaeyjum) Móðir Sigurðar var Ingunn Sigurðardóttir ættuð undan Eyjafjöllum. Bústýra Sigurðar var Hildur Guðmundsdóttir (1891-1966) frá Gýjarsteini. Sonur hennar var sr. Eiríkur J Eiríksson prestur á Þingvöllum. Guðmundur faðir hennar Guðmundsson var ferjumaður á Iðu, síðar bóndi á Óseyrarnesi um tíma en bjó síðast á Gýjarsteini Stokkseyri. Sigurður fótbronaði illa um borð í bát er hann var skipverji á, þá ungur maður og var af tekinn af fóturinn við hné eftir að sýking komst í og gékk hann síðan með tréfót. Ungur var Sigurður sjómaður á kútter "Valtýr" í Reykjavík en síðar útgerðarstjóri fyrir bát Páls Grímssonar heitins mág síns í Þorlákshöfn. Sigurður lærði skósmíði hjá Ebeneser skósmiðs í Hraungerði (Sjá Pálína Pálsdóttir) og starfaði við það síðan. Skósmíðaverkstæðið var í smáhýsi sem byggt var við Hraungerði en löngu búið að rífa. Eftir Sigurð lögðust skósmíðar af á Bakkanum.
miðvikudagur, 31. desember 2025
Pálína Páls - "Pálína í Hraungerði "
Pálína Pálsdóttir (1891-1983) bjó í Hraungerði við Búðarstíg. Pálína var ættuð af Strönd í Meðallandi. Móðir Pálínu var Þorgerður Halldórsdóttir trésmiðs á Rauðnefsstöðum. Pálína var ekkja Guðmundar skósmiðs Ebenesersonar gullsmiðs á Skúmsstöðum. Þau voru barnlaus. Pálína gaf sig mjög að félagsmálum og var meðhjálpari við kirkjuna. Pálína og Þorgerður voru þekktar sem "Hraungerðismæðgunar" Pálína missti föður sinn áður en hún fæddist, en hann veiktist af lungnabólgu í sjóróðri frá Eyrarbakka 1891. Þær mæðgur urðu síðan umsjónarmenn kirkjunnar. Hraungerði tengdist óbeint áfram starfi þjóðkirkjunnar þegar Haukur Guðlaugsson Söngmálastjóri eignaðist húsið. Guðlaugur kaupmaður "Laugi í Laugabúð" frændi þeirra mæðga ólst upp hjá Þorgerði og Haukur sonur hans og Ingibjargar Jónasdóttir var þar húsagangur í sinni æsku.
-Þó Pálína ætti enginn börn, þá var hún sérstaklega barngóð og gaukaði kexi eða súkkulaði að börnum sem áttu leið hjá. Oft fékk barnaskarinn á Vesturbakkanum að stunda leiki sína í kringum húsið hennar óáreitt.
Guðjón Öfjörð - "Gauji Ö"
Guðjón Öfjörð Sigfússon (1929--1994) þekktur sem "Gauji Ö" frá Lækjarmóti bjó í Stíghúsi á Búðarstíg og rak vélaverkstæði þar sunnan til á lóðinni við sjógarðinn. Sigfús faðir hans Öfjörð á Lækarmóti var ítustjóri og oft fenginn í jarðvinnuverkefni á ströndinni. Móðir Guðjóns var Lára Guðmundsdóttir frá Sólheimum í Gnúpverjahreppi. Guðjón var giftur Fanney Guðrúnu Magnúsdóttur úr Reykjavík, en afi hennar var Kjartan Guðmundsson á Stokkseyri. Guðjón og Fanney áttu 4 börn.
Þau féllu frá á árinu 2025
Ásta Ólafsdóttir (1936-2025) hún ólst upp hjá systkynunum Jóni Kristinn og Ástu Gunnarsbarna í Gunnarshúsi.
Bragi Andrésson (1946-2025) Hjalladæl. Bragi var ættaður frá Sperðli í Landeyjum og þekktur fyrir hrossarækt. Eftirlifandi kona hans er María Níelsen.
Emil Ragnarsson (1944-2025) Háeyrarvöllum. Emil var þekktur sauðfjárræktandi á Eyrarbakka. Eftirfarandi kona hans er Ingibjörg Guðmundsdóttir.
Sigríður Sæmundsdóttir Túngötu, þekkt sem 'Sigga Sæm'. Eftirlifandi eiginmaður hennar er Trausti Sigurðsson vörubifreiðastjóri.
þriðjudagur, 30. desember 2025
Sverrir Bjarnfinns - "Sverrir skipstjóri "
Sverrir skipstjóri Bjarnfinnsson (1920-1992) steinsmiðs á Búðarstíg Þórarinssonar bónda í Nýjabæ. Móðir hans var Rannveig Jónsdóttir hafnsögumanns í Melshúsum. (Sjá: Guðrún Bjarnfinnsdóttir) Sigurðssonar formanns í Neistakoti, Teitsson hafnsögumanns á Skúmsstöðum. Sverrir var giftur Guðlaugu Böðvarsdóttir (1922-2012) -þekkt sem "Lilla" - frá Einarshöfn Friðrikssonar bónda á Stönd í Landeyjum. Þau áttu tíu börn. Sverrir var skipstjóri á Þorláki Helga ÁR og átti farsælan sjómannsferil. Árið 1966 brann íbúðarhús þeirra á Búðarsignum til kaldra kola. Sverrir byggði á sama stað eitt fyrsta nútímalega einbýlishúsið á Eyrarbakka og að margra mati hið glæsilegasta. Eftir að skipstjóraferlinum lauk starfaði hann við netagerð í Óðinshúsi.
mánudagur, 29. desember 2025
Sigurður kaupmaður -"Siggi Kristjáns "
Sigurður Kristjánsson (1896-1977) þekktur sem "Siggi Kristjáns" bjó í einu af reisulegri húsunum á Búðarsignum. Kristján faðir hans Jóhannesson var sparisjóðsstjóri á Eyrarbakka í eina tíð og kaupfélagsstjóri. Elín Sigurðardóttir hét kona hans og móðir Sigurðar. Fyrri kona Sigurðar var Sigurbjörg Vilhjálmsdóttir ferjumanns og járnsmiðs á Óseyrarnesi. Þau áttu eitt barn. Síðari kona Sigurðar var Aðalheiður Jónsdóttir frá Litlu Háeyri. Þau áttu tvö börn. Siggi Kristjáns var kaupmaður á Eyrarbakka, fyrrum hreppstjóri og áhugaljósmyndari. Hann var einn fárra sem eignaðist bifreið í upphafi bílaaldar. Hann gaf sig nokkuð að hreppsnefndarmálum á Bakkanum um miðja 20. öld og var formaður skólanefndar Barnasólanns á Eyrarbakka.
Jón V Ólafsson - "Jón Valgeir "
Jón Valgeir Ólafsson (1915-2003) verkstjóri bjó á Búðarstíg. Afi hans Jón Árnason var útvegsbóndi í Þorlákshöfn. Móðir hans var Jónína Guðrún Sigurðardóttir formanns á Kalastöðum. (1872-1945) Kona hans var Guðrún Bjarnfinnsdóttir (1923-1989) "Stella " dóttir Rannveigar Jóns hafnsögumanns í Melshúsum. Þau eignuðust sjö börn. Stella var mjög virk í kvennfélaginu og kirkjukórnum. Jón Valgeir ásamt fleirum gerðu út m/b Pipp ÁR um nokkurt skeið en lengst af var hann verkstjóri í Plastiðjunni en flestir starfsmenn þar voru úr Skúmstaðar og Einarshafnarhverfi. Í hjáverkum stundaði Jón Valgeir grásleppuveiðar á litlum árabát sem hann réri austur í Hrauns-lónin. Síðar þegar starfsemi Plastiðjunar dróst saman og framleiðslueiningar seldar úr þorpinu þá setti hann upp dálítið kjúklingabú í byggingu á baklóð sem áður var þvottahús og smiðja. Fyrsta og eina kjúklingabúið á Bakkanum. Jón Valgeir hafð sérstakt yndi af stangveiðum og fór reglulega í laxveiði ásamt valinkunnum hópi Bakkamanna. Sonur þeirra Haraldur fórst með Hafrún ÁR-28 úti fyrir Eldey 1976
sunnudagur, 28. desember 2025
Ragnhildur Ólafs - "Ragna í Hreggvið "
Ragnhildur Ólafsdóttir (1893-1984) frá Hreiðurborg bjó í Hreggvið í Skúmstaðahverfi. Móðir hennar hét einnig Ragnhildur og var Ísleifsdóttir úr Selvogi. Ragnhildur var ekkja Gísla Pálssonar í Nesi Selvogi. Sagt er að Ragnhildur eldri hafi látið byggja Hreggvið 1925. Börn Ragnhildar yngri voru Ólafur Gíslason "Óli Gísla" í Sandvík vegaverkstjóri og Gísli Ragnar Gíslason á Austurvelli, Háeyrarvöllum. Þekktur sem "Gísli í Kaupfélaginu " síðar fangavörður og lögga.
Skúmstaðahverfi
laugardagur, 27. desember 2025
Guðmundur Andrésar - "Gvendur Andrésar "
Guðmundur Andrésson (1902-1977) þekktur sem Gvendur Andrésar bjó á Skúmsstöðum (Hallanda). Bústýra hans var Guðrún Alda Helgadóttir (1930-2013) frá Borgarholti á Stokkseyri og Steinvarar Jónsdóttur. Sonur Öldu er "Helgi Ingvars" fyrrum sjómaður og skipstjóri. Alda starfaði allann sinn starfsaldur við fiskvinnslu og var með hressustu kerlingum á Bakkanum. Hún var síðast búsett á Sólvöllum.
Þuríður Helga - "Þura á Kaldbak "
Þuríður Helgadóttir (1904-1995) þekkt sem "Þura á Kaldbak" var ekkja Guðjóns (1897-1964) Guðmundssonar frá Vorhúsum. Foreldrar Þuríðar voru Kristín Jónsdóttir frá Súluholtshjáleigu og Helgi Jónsson bónda þar. Þuríður og Guðjón áttu fjögur börn. Þuríður vann við fiskvinnslu eins og allmargir Bakkakonur í þann tíma og söng í kirkjukórnum. Nokkrum árum eftir fráfall Guðjóns flutti Þura til Ingu dóttur sinnar á Smáratúni og dvaldi þar til æviloka.
föstudagur, 26. desember 2025
Jón Þórarins - "Jón Kaldi"
þorbergur Jón Þórarinsson (1915-1998) á Skúmsstöðum þekktur sem "Jón kaldi". Sonur þórarinns í Stígprýði og Oddnýju Magnúsdóttir formanns í Nýjabæ. Guðrún Guðjónsdóttir (1913-2013) "Gunna" var bústýra hjá Jóni, en bjó áður með Kristni Vilmundarsyni í Vestmannaeyjum og átti barn með honum. ( sjá: Þórir Vilmundur Kristinsson). Þau Jón og Gunna giftust síðar. Jón starfaði lengi í Plastiðjunni. Gunna bjó síðustu árin á Sólvöllum og náði 100 ára aldri.
Gerast áskrifandi að:
Ummæli (Atom)