Veðrið á Bakkanum

https://www.windfinder.com/forecast/eyrarbakki

mánudagur, 14. október 2019

Stúkan lagfærð

 

Lekavandamál hafa verið viðvarandi í Stúkunni á Selfossvelli, en með nýrri tækni er vonast til að vandamálið heyri sögunni til. Borað er inn í steypa á fjölmörgum stöðum og ventlar settir í, en í þá er sprauta frauðefni undir þrýstingi. Frauðefni leitar í allar sprungur og lokar þeim. Það var Vörðufell ehf sem sá um framkvæmdir.

fimmtudagur, 10. október 2019

Fjörustígur formlega opnaður

 Fjörustígurinn, fjögurra kílómetra langur göngu- og hjólastígur sem liggur á milli Eyrarbakka og Stokkseyrar, var formlega tekinn í notkun í gær. Meðal viðstaddra voru Eyþór Laxdal Arnalds sem var í forystu bæjarstjórnar þegar vinna við gerð stígsins hófst og Tómas Ellert Tómasson, bæjarfulltrúi Miðflokksins í Sveitarfélaginu Árborg.

Morgunblaðið - 10. október 2019

fimmtudagur, 26. september 2019

Kvikmyndahátíðin Brim

 



Umhverfismál verða í aðalhlutverki á kvikmyndahátíðinni Brim sem haldin verður á Eyrarbakka á laugardag. Hinir ýmsu staðir í byggðarlaginu verða nýttir til sýningarhalds, þar sem ekkert bíóhús er í þorpinu. 

Meðal annars tekur grunnskólinn í þorpinu þátt með því að nemendur í níunda bekk sýna stuttmynd sem þau hafa gert og fjallar um plast og hafið.

Morgunblaðið - 26. september 2019

miðvikudagur, 1. maí 2019

Alpan-hús verður Safnahús

 Héraðsnefnd Árnesinga hefur keypt Búðarstíg 22 sem verður gert að varðveislu húsi Byggðasafnsins og verður hluti þess leigður þjóðminjasafninu. Þá hefur Héraðsnefnd sett Hafnarbrú 3 á sölu.

mánudagur, 31. desember 2018

Eyrbekkingar kvaddir 2018

Birgir Sveinsson vörubílstjóri á Eyrargötu.
Bjarney Ágústsdóttir á Selfossi/frá Sæfelli.
Böðvar Sigurjónsson garðyrkjubóndi á Túngötu.
Sæmundur Þ Guðmundsson í Reykjavík. 

föstudagur, 19. október 2018

Climate Eyrarbakki

 The weather was unusually wet this summer in the south of Iceland. 

Morgunblaðið - 19. október 2018


laugardagur, 22. september 2018

Hannes Andrésson

 Hannes Andrésson frá Litlu Háeyri hlaut Íslensku fálkaorðuna (Riddarakrossinn) árið 1971 fyrir rafvæðingu í sveitum. Hannes hóf störf hjá Rafmagnsveitu ríkisins árið 1946 og starfaði víða um land við lagningu háspennulína og síðar verkstjóri hjá Rarík.

Hannes var fæddur 22. september 1892 sonur Andrésar Guðmundssonar og Guðbjargar Guðmundsdóttir og bjuggu þau að Skúmstöðum. Kona Hannesar var Jóhanna Bernharðsdóttir frá Keldnakoti á Stokkseyri. Þau hófu búskap í gamla bænum að Litlu Háeyri og ólu þar upp 9 börn.