Veðrið á Bakkanum

https://www.windfinder.com/forecast/eyrarbakki

sunnudagur, 8. júní 1980

Holóttar götur á undanhaldi

 1979

Holur og ryk á undanhaldi Nýlega var lögð olíumöl á um 200 metra langan kafla af aðalgötunni á Eyrarbakka . Þessi götukafli hefur löngum verið þyrnir í augum vegfar-enda því hann hefur verið mjög holóttur og nánast ófær í vætutið.

Dagblaðið - 25. október 1979

fimmtudagur, 1. maí 1980

Dvergkrákur a Bakkanum

 Hinn 29. febr. 1976 sáust fimm dvergkrákur á Eyrarbakka. Að sögn heimamanna höfðu dvergkrákurnar komið á sama tíma og flóðið mikla varð (3. nóv.), flestar höfðu þær verið átta til tíu.

sunnudagur, 23. mars 1980

Verslunarhúsin rifin

 1950

Það var árið 1950 að Kaupfélag Amessinga lét rífa gömul verslunarhús á Eyrarbakka og flytja úr þeim timbur til Þorlákshafnar til að nota í byggingu nýs saltf iskverkunarhúss. Verslunarhúsin á Eyrarbakka, sem höfðu verið í eigu Kaupfélags Ámessinga í um 10 ár þegar þau voru rifin, áttu sér næstum tveggja alda sögu.

laugardagur, 19. janúar 1980

Ljósmyndasýning

 Mats Wibe Lund með ljósmyndasýningu í Barnaskólanum. Loftmyndir yfir þéttbýli á Suðurlandi. 

Tíminn - 19. janúar 1980

föstudagur, 3. ágúst 1979

Ekki frí um Versló

 Unnið verður í fiski alla verzlunarmannahelgina.

 Togarinn Bjarni Herjólfsson kom með fullfermi af þorski að landi í gær.

Dagblaðið - 03. ágúst 1979

laugardagur, 12. maí 1979

Ekert minnst á Óseyrarbrú

 Á síðustu tveimur árum hafa fjörutíu manns flutt héðan,” sagði Magnús Karel Hannesson, sveitarstjórnarmaður á Eyrarbakka, í samtali við DB. Í fyrrakvöld héldu hreppsnefndarmenn á Eyrarbakka og Stokkseyri fund með þingmönnum Suðurlandskjördæmis vegna þess að verið er að leggja fram á Alþingi vegaáætlun til fjögurra ára þar sem ekki er minnzt einu orði á Ölfusárbrú.

Dagblaðið - 12. maí 1979