Veðrið á Bakkanum
þriðjudagur, 31. desember 1985
Eyrbekkingar kvaddir 1985
þriðjudagur, 24. desember 1985
Umfjöllun um byggðir í vomum
Eyrarbakki og Stokkseyri hafa enaþá á sér svipmót frá fyrstu áratugum aldarinnar, þegar bárujárnið varð alls ráðandi.
Lesbók Morgunblaðsins - 24. desember 1985
sunnudagur, 1. desember 1985
Samtök um dvalarheimili
Fimmtudaginn 14. nóvember var stofnað nýtt félag á Eyrarbakka. Félagið hlaut nafnið Samtök áhugamanna um dvalarheimili á Eyrarbakka. Stofnfundur félagsins var með fjöl- mennustu almennu fundum sem hér hafa verið haldnir um árabil. Yfir fimmtíu manns komu á fundinn og gerðust fimmtíu fundarmanna stofnfélagar samtakanna.
Fréttamolinn : óháð fréttablað - 1985
laugardagur, 2. nóvember 1985
Brjáluð vinna í síld
Þessa dagana er unnið á tveimur 12 tíma vöktum við síldarsöltun í Frystihúsinu. Síldin er flökuð hér og söltuð fyrir Svíþjóðarmarkað.
föstudagur, 19. júlí 1985
HEIMILISHJÁLP STENDUR TIL BOÐA
1985
Það er nokkuð stór hópur eldri borgara á Eyrarbakka. Heimilishjálp hefur staðið til boða í um það bil tíu ár, og margir hafa hagnýtt sér hana. Það hefur orðið til þess, að eldri Eyrbekkingar hafa lengur getað dvalizt á heimilum sínum heldur en ella hefði verið.
miðvikudagur, 1. maí 1985
Bjarni Herjólfsson boðinn upp.
Eyrarbakkahreppur stofnaði ásamt Selfosshreppi, Stokkseyrarhreppi og einstaklingum í þessum sveitarfélögum útgerðarfélagið Árborg hf. 1977 til þess að annast útgerð togarans Bjarna Herjólfssonar, sem þá var keyptur til landsins.
Togarinn var seldur fyrir slikk á uppboði í lok síðasta árs.
föstudagur, 19. apríl 1985
Alpan ný verksmiðja á Eyrarbakka
Iðnaðarráðherra Sverrir Hermannsson heimsótti í dag ásamt þingmönnum Suðurlands, verksmiðjuhús Alpan á Eyrarbakka, en ráðherrann ásamt þingmönnum var að kynna sér stöðu mála hjá Alpan og horfur, en ráðgert er að hefja framleiðslu á álpönnum og pottum fyrir árslok. Verksmiðjan var keypt frá Danmörku.