Guðmundur Hannesson er í þessum hópi, hann er um þessar mundir að gera upp gamalt hús- Nýjabæ eystri á Eyrarbakka ásamt Eyjólfi Pálssyni mági sínum með aðstoð smiðsins Jóns Karls Ragnarssonar. „Húsið sem um ræðir er frá 1898, en þegar við keyptum húsið 1997 var það talið vera byggt 1902,“ segir Guðmundur.
Veðrið á Bakkanum
laugardagur, 4. maí 2002
miðvikudagur, 1. maí 2002
Textíl hönnunarstofa í Reginn
Húsið Regin (Háeyri) á Eyrarbakka á sér merka sögu frá upphafi, en kjallarinn er fyrsta steinsteypta byggingin á Eyrarbakka ( byggt 1907) og Oddur Oddson setti þar upp fyrstu símstöðina Sunnanlands (1909) og rak gullsmíðaverkstæði á hæðinni og járnsmiðja var þar í kjallaranum. Þar var síðar Verslunin Reginn. Núna er þar textíl- sauma og hönnunarstofa hjónanna Kristínar og Tristan Cardew en þau reka jafnframt verslun í Reykjavík.
Pétur Pétursson þulur rifjar upp vesturferðir Íslendinga
Pétur Guðmundsson, var faðir greinarhöfundar Peturs útvarpsþuls og oddviti Eyrarbakka þegar ferðir hófust héðan til vesturheims. Pétur fjallar um vesturferðir Eyrbekkinga í grein sem finna má í Morgunblaðinu - 08. júlí 2001
mánudagur, 31. desember 2001
Eyrbekkingar kvaddir 2001
sunnudagur, 31. desember 2000
Eyrbekkingar kvaddir 2000
sunnudagur, 18. júní 2000
Suðurlandsskjálftinn 17. Júní
Það var um kl. 15:40 sem stór jarðskjálfti reið yfir Suðurland. Skjálftinn var 6,5 stig og fjöldi eftirskjálfta varð vart. Upptök skjálftans voru í Holtum. Rafmagn fór af á Selfossi og GSM samband féll út.
fimmtudagur, 1. júní 2000
Ný geymsla fyrir fornmuni
HÉRAÐSNEFND Ámessýslu hefur boðið út byggingu geymsluhúsnæðis við Byggðasafn Árnesinga. Búið er að úthluta safninu lóð á Eyrarbakka þar sem meginhluti safnsins er til húsa. Lýður Pálsson safnvörður segir að geymslumál Byggðasafns Árnesinga hafi til margra ára verið í óviðunandi horfi.